Doktorsvörn við Læknadeild 13. desember
Mánudaginn 13. desember fór fram doktorsvörn við Læknadeild Háskóla Íslands. Þá varði Harpa Helgadóttir, sjúkraþjálfari, doktorsritgerð sína „Rannsókn á stöðugleikakerfi herðablaðs hjá sjúklingum með verki í hálshrygg. Mat á stöðu herðablaðs og kveikjumynstri stöðugleikavöðva herðablaðs hjá sjúklingum með hálsverki af óþekktum uppruna og eftir hálshnykk“ (Investigation of the stability system of the scapula in patients with cervical spine disorders. Assessment of scapular orientation and recruitment of the scapular stability muscles in patients with insidious onset neck pain and whiplash associated disorder).
Ágrip úr rannsókn
Niðurstöður doktorsverkefnis Hörpu varpa ljósi á starfsemi axlargrindar hjá einstaklingum með hálsverki. Truflanir á starfsemi axlargrindar eru taldar tengjast hálsverkjum og endurteknum hálsverkjaköstum. Marktækur mismunur var á stöðu axlargrindar, hálshryggs og starfsemi síðusagtennings hjá einstaklingum með hálsverki samanborið við einkennalausan samanburðarhóp. Niðurstöður sýndu einnig mismun á milli stöðu axlargrindar hjá einstaklingum með hálsverki af óþekktum uppruna og eftir bílákeyrslu. Þessar breytingar á starfsemi axlargrindar og stöðu hálshryggjar geta verið mikilvægur þáttur í viðvaranleika og auknum einkennum hjá sjúklingum með hálsverki.
Rannsóknin var unnin á Rannsóknastofu í hreyfivísindum við Námsbraut í sjúkraþjálfun. Verkefnið var styrkt af Rannís og Vísindasjóði Landspítalans.
Andmælendur voru dr. Phil McClure, prófessor, Arcadia University, Glenside í Bandaríkjunum og dr. Björn Zoëga, bæklunarskurðlæknir og klínískur prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands. Umsjónarkennari var Halldór Jónsson jr., prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknir á bæklunarskurðlækningadeild Landspítala. Leiðbeinandi var dr. Eyþór B. Kristjánsson, sjúkraþjálfari, FORMI, Ullevål háskólasjúkrahúsinu í Osló. Aðrir í doktorsnefnd voru dr. Andrew Karduna, dósent, Orthopaedic Biomechanic Laboratory, University of Oregon, Atli Ágústsson, M.Sc., og dr. Árni Árnason, dósent við Námsbraut í sjúkraþjálfun við Læknadeild Háskóla Íslands.
Dr. Guðmundur Þorgeirsson, prófessor og forseti Læknadeildar, stýrði athöfninni.
Um doktorsefnið
Harpa Helgadóttir er fædd árið 1966. Hún lauk BS prófi í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 1991, sérfræðigráðu í stoðkerfisfræðum frá University of St. Augustine í Flórída árið 2000 og meistaragráðu (MHSc) frá sama skóla árið 2005. Harpa hefur starfað sem sjúkraþjálfari bæði hjá öðrum og sjálfstætt með eigin rekstur. Frá árinu 2001 hefur Harpa verið stundakennari við Háskóla Íslands. Harpa hóf doktorsnám við Læknadeild árið 2006.
Harpa er dóttir Dagbjartar Sigurbergsdóttur og Helga Steingrímssonar. Eiginmaður hennar er Rúrik Vatnarsson lögfræðingur og eiga þau fjögur börn, Andra Vatnar, Sigurberg, Lilju og Dagbjörtu.
13.12.2010 16:06




