Vefgátt jafnréttismála: jafnretti.hi.is
Jafnréttisáætlun Háskóla Íslands 2009-2013
Jafnrétti kvenna og karla
Samþykkt á fundi háskólaráðs 15. janúar 2009
I. Inngangur
1. Almennt
Háskóli Íslands hefur sett sér það markmið að vera ávallt í fararbroddi í jafnréttismálum, það er skólanum metnaðarefni að hlúa vel að málaflokknum innan skólans og ennfremur að þróa sérþekkingu á sviði jafnréttismála til gagns fyrir samfélagið í heild.
Í jafnréttisáætlun þessari koma fram helstu áherslur skólans í jafnréttismálum og hvernig Háskóli Íslands hyggst ná markmiðum sínum. Eitt af því sem skólinn telur mikilvægt að leggja áherslu á er samræming vinnu og fjölskyldulífs starfsmanna og nemenda. Nauðsynlegt er að bæði karlar og konur geti með góðu móti ræktað fjölskyldu- og einkalíf samhliða krefjandi starfi innan Háskóla Íslands, og vill skólinn leggja sitt af mörkum í því efni, m.a. með því að hvetja bæði kyn til að nýta sér fæðingarorlof. Háskólinn vill halda áfram að þróa sérstöðu sína sem fjölskylduvænn vinnustaður, enda er mikilvægt að bæði karlar og konur njóti sín í starfi og námi við skólann, og telur Háskóli Íslands að samræming vinnu og fjölskyldulífs sé mikilvægur liður í jafnrétti kynjanna.
Vellíðan á vinnustað er mikilvægur þáttur í gæðaviðmiðum skólans og skal það skýrt tekið fram að hvorki kynferðisleg né kynbundin áreitni er liðin í Háskóla Íslands, heldur er það markmið skólans að gagnkvæm virðing karla og kvenna ríki meðal starfsmanna skólans og stúdenta. Í gildi er áætlun sem jafnréttisnefnd hefur lagt fram þar sem skilgreind eru úrræði ásamt leiðbeiningum um vinnulag og kæruleiðir í málum er varða kynferðislega áreitni. Áfram skal tryggt að áætluninni verði framfylgt, og að hún verði uppfærð með tilliti til 22. gr. laga nr. 10/2008.
Mikilvægt er að konur og karlar hafi sömu tækifæri í starfi og námi. Háskóli Íslands leggur áherslu á að jafna hlutfall kynjanna í sambærilegum stöðum, einkum í stjórnunar- og áhrifastöðum eins og jafnréttislög gera ráð fyrir.
Í nýjum jafnréttislögum nr. 10/2008 er sérþekkingu á jafnréttismálum gert hátt undir höfði. Í 23. gr. laganna er lögð áhersla á rannsóknir á stöðu kynjanna í íslensku samfélagi, jafnt fræðilegar grunnrannsóknir sem hagnýtar rannsóknir. Háskóli Íslands er flaggskip vísinda og rannsókna hér á landi og því mikilvægt að skólinn axli þá ábyrgð sem lögin kveða á um. Innan skólans er mikil gróska í rannsóknum og þekkingu á jafnréttismálum, og má þar nefna námsbraut í kynjafræði, Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum, Rannsóknasetur í fötlunarfræðum og nýjustu viðbótina við jafnréttisflóruna í Háskóla Íslands - jafnréttisskóla sem verið er að koma á laggirnar og rannsóknasetur í jafnréttis-, kynja- og margbreytileikafræðum sem mun styðja við starfsemi jafnréttisskólans. Háskólinn er stoltur af þeirri þróun sem átt hefur sér stað innan skólans í sköpun sérfræðiþekkingar í jafnréttismálum, og er hér lögð áhersla á að sú sérþekking sé nýtt í innra starfi skólans til að styrkja enn frekar stöðu skólans sem stofnunar þar sem jafnréttismálum er gert hátt undir höfði.
Í Háskóla Íslands er lögð rík áhersla á rannsóknir og með gerð jafnréttisáætlunar að þessu sinni er lögð sérstök áhersla á mikilvægi Háskóla Íslands sem vettvangs vísinda og rannsókna. Til að vísindastarf Háskóla Íslands standist alþjóðlegan samanburð og nýtist samfélaginu öllu þarf það að spegla fjölbreytni vísindasamfélagsins og brýnt er að bæði karlar og konur hafi jafnan aðgang að menntun, framgangi, rannsóknum og fjármagni. Þess vegna er öllum fræðasviðum og stofnunum Háskóla Íslands gert að vinna samkvæmt jafnréttisáætlun þessari og fræðasvið skulu setja sér eigin jafnréttisáætlun og vinna eftir henni. Ennfremur skal starfa jafnréttisnefnd á hverju fræðasviði sem gerir jafnréttisáætlun fyrir sviðið og eftir atvikum stofnanir því tengdar og fylgir henni eftir í framkvæmd.
Fyrsta jafnréttisáætlun Háskóla Íslands var samþykkt af háskólaráði 19. október 2000. Hún byggði á lögum nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og tók mið af tillögum millifundanefndar háskólaráðs um jafnréttismál frá 16. apríl 1997. Í áætluninni fólst viðurkenning á nauðsyn þess að grípa til sérstakra tímabundinna aðgerða til þess að raunverulegt jafnrétti og jafnstaða kvenna og karla næðist. Þegar sú áætlun var endurskoðuð var markmiðið að tryggja áframhaldandi markvisst starf að jafnréttismálum og jafna stöðu kynjanna innan háskólasamfélagsins. Sérstök áhersla var lögð á jafnréttisstarf sem lið í gæðaumbótum innan Háskóla Íslands. Endurskoðuð jafnréttisáætlun Háskóla Íslands 2005-2009 var samþykkt á háskólafundi 17. nóvember 2005.
Nú eins og þá er stefnt að því að kynja- og jafnréttissjónarmið séu samþætt allri starfsemi Háskóla Íslands, s.s. við stjórnun, kennslu og rannsóknir og að jafnrétti kynja verði haft að leiðarljósi við stefnumótun, ákvarðanatöku og áætlanagerð.
Þann 1. júlí 2008 urðu umtalsverðar skipulagsbreytingar á Háskóla Íslands. Kennaraháskóli Íslands sameinaðist Háskóla Íslands og skipulagi Háskóla Íslands var enn fremur breytt þannig að skólanum var skipt í 5 fræðasvið. Á hverju fræðasviði eru 3-6 deildir, og alls er deildir Háskóla Íslands 25. Í ljósi þessarar endurskipulagningar og sameiningar skólanna tveggja þótti nauðsynlegt að endurskoða jafnréttisáætlun skólans, og hafði jafnréttisnefnd Háskóla Íslands umsjón með verkinu í samráði við fulltrúa Kennaraháskóla Íslands.
Jafnréttisnefnd starfar samkvæmt erindisbréfi sem samþykkt var á fundi háskólaráðs í júní 2007. Samkvæmt erindisbréfinu er það hlutverk hennar að sinna jafnréttismálum í víðum skilningi og er hér vakin athygli á samþykktum um Stefnu Háskóla Íslands í málefnum fatlaðra (2002) og Stefnu Háskóla Íslands gegn mismunun (2005). Áréttað er að jafnréttisáætlunin sem hér fer á eftir tekur sérstaklega til jafnréttis karla og kvenna, eins og lög nr. 10/2008 gera ráð fyrir.
Mikilvægt er að starfsfólk og stúdentar við Háskóla Íslands þekki til markmiða skólans í jafnréttismálum, og skal jafnréttisnefnd Háskóla Íslands því sjá til þess að áætlun þessi verði kynnt með viðeigandi hætti, og skal sérstaklega hugað að því að stjórnendum og fólki í ábyrgðarstöðum sé kynnt stefna skólans í jafnréttismálum.
2. Framkvæmd, ábyrgð og umfang
Forsetar fræðasviða, forstöðumenn stofnana og framkvæmdastjórar stjórnsýslusviða bera ábyrgð á að einstökum ákvæðum jafnréttisáætlunarinnar sé framfylgt en endanleg ábyrgð á jafnréttisstarfinu innan Háskóla Íslands hvílir á yfirstjórn hans þ.e. háskólaráði og rektor.
Jafnréttisnefnd fer með umsjón jafnréttismála í Háskóla Íslands í umboði rektors og háskólaráðs. Nefndin mótar og gerir tillögur um jafnréttisáætlun Háskóla Íslands, fylgist með framgangi hennar og endurskoðar hana reglulega.
Jafnréttisáætlunin tekur til eftirfarandi meginþátta:
I. Stöðu og kjara karla og kvenna innan Háskóla Íslands.
II. Aðildar kynjanna að nefndum, stjórnum og ráðum Háskóla Íslands.
III. Aðstöðu og möguleika kvenna og karla í námi og að námi loknu.
IV. Samþættingar kynja- og jafnréttissjónarmiða við alla stefnumótun og áætlanagerð.
Að lokum er sett fram verklag við gerð jafnréttisáætlana fræðasviða stofnana og stjórnsýslusviða.
Hver kafli hefst með stuttri lýsingu á stöðu mála og markmiðum og síðan er yfirlit yfir þær aðgerðir sem áætlaðar eru.
3. Eftirfylgni og endurskoðun
Mikilvægt er að fram fari faglegt símat á áhrifum jafnréttisáætlunar og jafnréttisstarfs innan Háskóla Íslands og að þær niðurstöður séu kynntar reglulega. Jafnréttisnefnd birtir ár hvert á heimasíðu sinni hvernig og hvenær skuli framfylgja einstökum markmiðum áætlunarinnar. Þar er nánar tilgreint hver beri ábyrgð á framkvæmd einstakra aðgerða og því að markmið jafnréttisáætlunarinnar náist á tilsettum tíma.
Áréttað er að til að jafnréttisáætlun skili tilætluðum árangri er nauðsynlegt að þróa skýrari árangursmælikvarða en mögulegt hefur verið hingað til í tengslum við þau markmið sem koma fram í áætluninni. Sú vinna þarf að fara fram á næstu tveimur árum til þess að mælingar verði raunhæfar fyrir gerð jafnréttisáætlunar árið 2012. Til að hrinda þessu í framkvæmd, verður að veita auknu fjármagni til þróunarstarfs á sviði jafnréttismála og vinna nauðsynlegar rannsóknir.
Jafnréttisnefnd skal taka áætlun þessa til endurskoðunar eigi síðar en árið 2012 og skal endurskoðun lokið fyrir árslok 2013.
II. Staða og kjör karla og kvenna
Stjórnendur við Háskóla Íslands skulu tryggja að hvorugu kyninu sé mismunað við úthlutun verkefna svo og við ákvarðanir á starfsaðstæðum. Innan Háskóla Íslands starfar fólk með mismunandi menntun og bakgrunn að margvíslegum störfum. Starfsmenn Háskóla Íslands dreifast á all nokkur stéttarfélög og samningsbundin kjör þeirra og starfsaðstæður eru því mismunandi.
Í lok ársins 2008 voru starfsmenn Háskóla Íslands rúmlega 1200; 52% konur og 48% karlar. Því starfa sem næst jafn margar konur og karlar innan skólans, en talsverður munur er þó á hlutdeild kynjanna í efstu þrepum, bæði innan stjórnsýslu og í akademískum störfum. Prófessorar voru flestir í hópi fastra kennara við Háskóla Íslands eða 38%, en af þeim voru 24% konur og 76% karlar. Í störfum dósenta voru 34% konur og 66% karlar, en 56% konur og 44% karlar í störfum lektora. Í stjórnsýslu Háskóla Íslands eru kynjahlutföllin 72% konur og 28% karlar og gegna karlar flestum af æðstu störfum í miðlægri stjórnsýslu skólans. Þá eru fjórir af fimm forsetum fræðasviða karlar.
Fjöldi og hlutföll karla og kvenna í akademískum störfum innan HÍ í árslok 2008
| Konur | Karlar | % konur | % karlar |
Lektorar | 94 | 74 | 56% | 44% |
Dósentar | 62 | 119 | 34% | 66% |
Prófessorar | 51 | 165 | 24% | 76% |
Alls | 207 | 358 | 37% | 63% |
Aðgerðir:
1. Hvorugu kyninu má mismuna við úthlutun styrkja úr sjóðum Háskóla Íslands. Vísindasvið í samvinnu við jafnréttisfulltrúa skal gera árlega úttekt á skiptingu umsókna og úthlutunum úr sjóðum eftir kynjum á gildistíma áætlunarinnar.
2. Hæfnis- og árangurslaun og aðrar ákvarðanir sem hafa áhrif á kjör skulu byggjast á málefnalegum forsendum óháð kyni. Mikilvægt er að tryggja launajafnrétti kynjanna, og að safnað sé saman upplýsingum um stöðu mála á því sviði. Jafnréttisnefnd skal sjá til þess að gerð verði launakönnun á gildistíma þessarar áætlunar að undangenginni starfaflokkun og taki hún til miðlægrar stjórnsýslu. Skal hún framkvæmd af aðila utan skólans. Að því loknu skal jafnréttisnefnd, í samráði við rektor, meta hvort nauðsynlegt sé að grípa til aðgerða til að leiðrétta stöðu og launamun kynjanna.
3. Í auglýsingum á vegum Háskóla Íslands skal gæta jafnræðis og jafnrar virðingar kynjanna, sbr. 26. gr. laga um jafnan rétt og jafna stöðu kvenna og karla. Sé starf auglýst á starfs- eða fræðasviði þar sem hallar á annað kynið skal í auglýsingu vekja athygli á því markmiði að jafna hlutfall kynjanna á viðkomandi starfsvettvangi.
4. Fræðasvið, deildir, stofnanir og stjórnsýslusvið skulu setja sér markmið um að jafna kynjaskiptingu innan starfs- og fræðasviða þar sem hún er ójöfn. Séu tveir eða fleiri umsækjendur um starf jafn hæfir verði valinn umsækjandi af því kyni sem er í minnihluta á umræddu starfs- eða fræðasviði, sbr. 26. gr. laga nr. 10/2008.
III. Aðild kynjanna að nefndum, stjórnum og ráðum Háskóla Íslands
Mikilvægt er að allir, karlar og konur, hafi sömu tækifæri til þátttöku við stjórnun og stefnumótun í Háskóla Íslands. Samkvæmt tölum frá árslokum 2008 voru sjö konur af 11 fulltrúum í háskólaráði. Í árslok 2007 voru sex af 11 deildarforsetum konur, en við skipulagsbreytingar 1. júlí 2008 varð niðurstaða kosninga sú að aðeins 9 af 25 kjörnum deildarforsetum voru konur, eða 36%. Í desember 2008 voru einungis 20% stjórnarformanna í stofnunum sem heyra undir háskólaráð konur. Karlar og konur deila nokkuð jafnt með sér sætum í fimm af sex starfsnefndum háskólaráðs. Í tveimur af nefndunum sex, jafnréttisnefnd og vísindanefnd, gegna konur formennsku. Ekki hefur verið skipað í eina af sex starfsnefndunum.
Þau nýmæli urðu við setningu laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 að við tilnefningar í nefndir, ráð og stjórnir á vegum hins opinbera er nú skylt að tilnefna bæði konu og karl. Við skipan skal þess gætt að hlutfall kynjanna sé ekki minna en 40% þegar um fleiri en þrjá fulltrúa er að ræða.
Aðgerðir:
1. Við skipan í nefndir, stjórnir, ráð, starfshópa og hvers kyns vinnuhópa á vegum Háskóla Íslands og stofnana hans skal hlutfall kynja vera sem jafnast og ekki minna en 40% þegar um fleiri en þrjá fulltrúa er að ræða sbr. 15. gr. laga nr. 10/2008. Þegar óskað er tilnefningar í hlutaðeigandi nefndir, ráð og stjórnir skal tilnefna bæði karl og konu, sbr. 15. gr. laga nr. 10 / 2008.
2. Skipa skal fulltrúa af báðum kynjum í dómnefndir og valnefndir vegna ráðninga og framgangs, sbr. 15. gr. laga nr. 10 / 2008, einnig þegar allir umsækjendur um tiltekið starf eru af sama kyni.
3. Tilnefningaraðilar skulu halda til haga upplýsingum um tilnefningar á sínum vegum og senda jafnréttisnefnd árlega yfirlit yfir þær.
4. Jafnréttisnefnd skal á ári hverju safna gögnum um tilnefningar og kynjahlutfall í nefndum, ráðum og stjórnum og koma þeim upplýsingum á framfæri.
5. Jafnréttisnefnd skal kynna nýtt ákvæði 15. gr. jafnréttislaga um tilnefningar í stjórnir, ráð og nefndir fyrir starfsfólki í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum innan skólans.
IV. Aðstaða og möguleikar kvenna og karla í námi og að námi loknu
Í október 2008 voru konur 68% nemenda í grunnnámi við Háskóla Íslands en karlar 32%, og meðal nemenda í framhaldsnámi voru konur 65% og karlar 35%.
Í 28. grein laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla segir að hvers konar mismunun á grundvelli kyns sé óheimil í skólum og öðrum mennta- og uppeldisstofnunum og að þess skuli gætt í námi og kennslu, starfsháttum og daglegri umgengni við nemendur. Í 23. gr. sömu laga er kveðið á um að nemendur skuli hljóta fræðslu um jafnréttismál á öllum skólastigum. Í lögunum er enn fremur kveðið á um að í náms- og starfsfræðslu og við ráðgjöf í skólum skuli leitast við að kynna bæði piltum og stúlkum störf sem hingað til hefur verið litið á sem hefðbundin kvenna- og karlastörf. Þá er kveðið á um að efla skuli rannsóknir á stöðu kynjanna í íslensku samfélagi, jafnt fræðilegar grunnrannsóknir sem hagnýtar rannsóknir, og miðla niðurstöðum þeirra markvisst innan skólastarfsins og til fjölmiðla. Auk þess segir í 3. mgr. að kennslu- og námsgögn skuli þannig úr garði gerð að kynjum skuli ekki mismunað.
Aðgerðir:
1. Stuðlað skal að því að fjölga nemendum af því kyni sem er í miklum minnihluta í einstökum deildum og námsleiðum Háskóla Íslands með markvissum aðgerðum. Þetta verði m.a. gert með því að kynning á námsleiðum, námsefni og kennslutilhögun sé þannig að hún höfði til beggja kynja.
2. Unnið skal að því að andrúmsloft, viðhorf til náms og fyrirkomulag kennslu í einstökum deildum fæli hvorki karla né konur frá því að velja þá námsleið sem hugur þeirra stendur til. Í því skyni skal jafnréttisnefnd í samvinnu við viðkomandi fræðasvið, deildir og eftir atvikum menntamálayfirvöld, standa fyrir rannsóknum á:
- ástæðum þess að meðal nemenda við Háskóla Íslands fjölgar konum hraðar en körlum.
- ástæðum fyrir takmarkaðri aðsókn og aðstæðum kvenna í tilteknum deildum verkfræði- og náttúruvísindasviðs.
- lítilli aðsókn kvenna, sem útskrifast með framhaldsmenntun á háskólastigi, að akademískum störfum innan tiltekinna deilda Háskóla Íslands.
V. Samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða við alla stefnumótun og áætlanagerð
Í samþættingu felst endurskoðun á ríkjandi viðhorfum og starfsaðferðum þar sem þær eiga sinn þátt í að skapa og viðhalda kynbundnum vanda eða mismunun. Í 2. gr. laga nr. 10/2008 er kynjasamþætting skilgreind svo: „Að skipuleggja, bæta, þróa og leggja mat á stefnumótunarferli þannig að sjónarhorn jafnréttis sé á öllum sviðum fléttað inn í stefnumótun og ákvarðanir þeirra sem alla jafna taka þátt í stefnumótun í samfélaginu." Markmiðið er að flétta sjónarhorn kynferðis inn í alla stefnumótun og að Háskóli Íslands geri starfsfólki sínu og stúdentum, konum sem körlum, kleift að samþætta fjölskyldulíf sitt og starf eða nám við skólann. Fræðsla um jafnréttismál til handa stjórnendum er grunnforsenda þess að samþætting verði árangursrík. Sérfræðingar í kynjafræðum gegna lykilhlutverki í slíku ferli.
Aðgerðir:
1. Öll fræðasvið, stofnanir og stjórnsýslusvið Háskóla Íslands skulu samþætta jafnréttissjónarmið inn í starfsemi sína og vinna eftir eigin jafnréttisáætlun sem sé í samræmi við jafnréttisáætlun Háskóla Íslands. Innan hvers fræðasviðs skal starfa jafnréttisnefnd sem hefur umsjón með gerð jafnréttisáætlunar sviðsins, og skulu stúdentar eiga fulltrúa í nefndinni.
2. Starfsmannastjóri skal, í samráði við rekstrarstjóra fræðasviða, forstöðumenn stofnana og framkvæmdastjóra stjórnsýslusviða tryggja að kyngreindar upplýsingar um stöðu og kjör starfsmanna liggi fyrir á heimasíðum fræðasviða, stofnana og stjórnsýslusviða.
3. Jafnréttisnefnd skal í samvinnu við námsbraut í kynjafræði standa fyrir fræðslu og ráðgjöf um jafnrétti kynja og samþættingarhugtakið með skipulegum hætti á öllum fræða- og starfssviðum Háskóla Íslands í formi funda, námskeiða og fræðsluefnis. Einkum skal beina slíkri fræðslu til stjórnenda og starfsfólks í ábyrgðarstöðum innan skólans. Þjálfa skal ráðgjafa og stjórnendur í meðferð mála er varða kynferðislega og kynbundna áreitni.
4. Við gagnaöflun og annan undirbúning ákvarðana sem áhrif hafa á stöðu kynjanna skal taka mið af þörfum og viðhorfum beggja kynja og greina afleiðingar þeirra með tilliti til jafnréttis.
5. Reynt skal að mæta þörfum fjölskyldufólks eftir megni, og ennfremur hvetur Háskóli Íslands bæði karla og konur til að nýta sér fæðingarorlof. Eins eru foreldrar hvattir til að skipta með sér heimaveru vegna veikinda barna sinna.
6. Jafnréttisnefnd standi fyrir:
- rannsókn á samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs meðal starfsmanna og stúdenta. Kanna skal núverandi möguleika fólks til að samþætta þessi tvö hlutverk, hvaða vandamál fólk glímir einkum við og með hvaða hætti Háskóli Íslands getur komið enn frekar til móts við starfsfólk og stúdenta.
- að ráðningarferli í heild verði skoðuð með aðferðum samþættingar - allt frá mótun starfsauglýsingar til lokaákvörðunar um ráðningu í starfið.
7. Jafnréttisnefnd skal láta vinna úttekt á stöðu jafnréttismála innan skólans á fjögurra ára fresti, sbr. skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála 1997 - 2002.
VI. Um jafnréttisáætlanir fræðasviða, stofnana og stjórnsýslusviða
Fræðasvið, tilteknar stofnanir og stjórnsýslusvið Háskóla Íslands skulu ljúka við gerð jafnréttisáætlana fyrir 1. janúar 2010. Þær skulu byggja á jafnréttisáætlun þessari. Einstök fræðasvið geta ákveðið að hver deild innan fræðasviðsins geri einnig jafnréttisáætlun. Mikilvægt er að hvert fræðasvið/stofnun/stjórnsýslusvið afli tölulegra upplýsinga um jafnréttismál innan síns starfsumhverfis áður en ráðist er í gerð jafnréttisáætlunar. Stuðst verði við gátlista jafnréttisnefndar þar um svo tryggja megi samræmi á milli fræðasviða, stofnana og miðlægrar stjórnsýslu. Jafnréttisnefnd á fræðasviði skal hafa umsjón með gerð jafnréttisáætlunar sviðsins.
1. Jafnréttisáætlanir fræðasviða, stofnana og stjórnsýslusviða skulu gerðar til þriggja ára í senn. Jafnréttisnefnd skal skipuð innan hvers fræðasviðs, eigi síðar en 2 mánuðum eftir að áætlun þessi tekur gildi, og skulu stúdentar eiga þar fulltrúa. Mun jafnréttisnefnd hvers fræðasviðs hafa umsjón með gerð jafnréttisáætlunar sviðsins og þeirra stofnana sem því tilheyra og færri starfsmenn en 25 starfa, fylgja áætluninni eftir, endurskoða hana með reglulegu millibili og vera tengiliður milli fræðasviðsins og jafnréttisnefndar Háskóla Íslands. Innan hverrar stofnunar með 25 starfsmenn eða fleiri og innan miðlægrar stjórnsýslu skólans skulu skipaðir starfshópar til að vinna að gerð jafnréttisáætlunar. Ef stofnun hefur færra starfsfólk en 25 skal jafnréttisáætlun þess sviðs sem hún tilheyrir ná til hennar. Í jafnréttisáætlun skal m.a. koma fram:
- Greinargerð með tölulegum upplýsingum um stöðu kvenna og karla innan fræðasviðs/stofnunar/stjórnsýslusviðs, bæði stúdenta og starfsfólks.
- Markmið jafnréttisáætlunar fræðasviðs/stofnunar/stjórnsýslusviðs sem mótuð eru út frá jafnréttisáætlun þessari og þeim upplýsingum sem aflað hefur verið um stöðu kynjanna meðal starfsmanna og nemenda.
- Tímasettar aðgerðir sem standa þarf fyrir til að ná markmiðum áætlunarinnar þar sem gerð er grein fyrir ábyrgð á framkvæmd þeirra og tímaáætlun.
- Ákvarðanir um hvernig jafnréttisáætlunin verður kynnt starfsmönnum og stúdentum.
2. Jafnréttisáætlun skal samþykkt á þingi fræðasviðs, af stjórn stofnunar eða yfirmönnum viðkomandi stjórnsýslusviðs.
3. Eftir að jafnréttisáætlun fræðasviðs/stofnunar/stjórnsýslusviðs hefur verið samþykkt skal gera jafnréttisnefnd skólans grein fyrir framvindu mála á tveggja ára fresti.
Fyrri jafnréttisáætlanir Háskóla Íslands
Jafnréttisáætlun Háskóla Íslands 2005-2009
University of Iceland Equal Rights Programme 2005-2009
Jafnréttisáætlun Háskóla Íslands 2000-2004
