Skip to main content

Ráðstefna um gæði og jafnræði í kennsluhátttum á Norðurlöndum

Ráðstefna um gæði og jafnræði í kennsluhátttum á Norðurlöndum - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
23. apríl 2024 9:00 til 16:00
Hvar 

Hótel Reykjavík Natura Nauthólsvegi 52, 101 Reykjavík

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Gæði og jafnræði í kennsluháttum á Norðurlöndum á sviði stærðfræði og náttúruvísinda. Norræn greining á TIMSS gögnum er ráðstefna sem haldin verður 23. Apríl nk. á Hótel Reykjavík Natura.

Sjá heimasíðu ráðstefnunnar hér

Ráðstefnan er haldin í tilefni af því að komið er út nýtt rit um stærðfræði- og náttúrufræðikennslu á Norðurlöndum. Nokkrir norrænir höfundar birta greiningar sínar á gögnum TIMSS rannsóknarinnar – en TIMSS er alþjóðleg rannsókn á frammistöðu nemenda í fjórða og áttunda bekk grunnskóla í þessum námsgreinum. Leitast er við að svara því hvaða kennsluhættir skila árangri og stuðla að jöfnuði. Byggt er á gögnum úr TIMSS fyrir árin 2011, 2015 og 2019. Ísland tók þátt í TIMSS árið 1995.

TIMSS (Trends in International Mathematics and Science Study) rannsóknin hefur verið lögð fyrir reglulega í um þrjá áratugi af IEA (International Association for the Evaluation of Educational Achievements). Ritið sem nú kemur út birtist í ritröðinni IEA Research for Education. Ráðstefnan er haldin með stuðningi norrænu ráðherranefndarinnar að frumkvæði Nordisk Evalueringsnetværk sem um árabil hefur beitt sér fyrir því að unnið sé sérstaklega úr norrænum rannsóknagögnum á sviði menntamála undir heitinu Northern Lights.

Ráðstefnan er haldin að undirlagi Nordisk evalueringsnetværk sem er norrænt samstarfsnet um mat á menntun sem Ísland á aðild að. Mennta og barnamálaráðuneytið stendur að ráðstefnunni í samvinnu við IEA, alþjóðleg samtök um námsmat í kjarnagreinum. Samstarfsaðilar eru Miðstöð mennta og skólaþjónustu (áður Menntamálastofnun), Kennarasamband Íslands og Menntavísinda­stofnun hjá Háskóla Íslands. Ráðstefnan og ritið eru fjármögnuð af Norrænu ráðherranefndinni.

Ráðstefnan fer fram á Reykjavík Hótel Natura en einnig er hægt að fylgjast með ráðstefnunni og umræðum í streymi. Vinsamlega skráðu þig til þátttöku hér og tilgreindu hvort þú hyggst mæta á staðinn eða fylgjast með í streymi:

https://menntavisindastofnun.hi.is/en/form/registration

Frekari upplýsingar um ráðstefnuna og dagskrá er að finna á heimasíðu ráðstefnunnar: 

https://menntavisindastofnun.hi.is/is/gaedi-og-jafnraedi-i-kennsluhattum...

TIMSS

Ráðstefna um gæði og jafnræði í kennsluhátttum á Norðurlöndum

Dagskrá

09:00 - 16:00
Gæði og jafnræði í kennsluháttum á Norðurlöndum á sviði stærðfræði og náttúruvísinda