Móttaka nýnema við Félagsvísindasvið
Háskólabíó - stóra sal
Nýnemum við Félagsvísindasvið er boðið á kynningarfund í stóra sal Háskólabíós, föstudaginn 25. ágúst kl. 14:00.
Dagskrá:
14.00 Forseti Félagsvísindasviðs býður nýnema velkomna
14.10 Kynning á aðstöðu nemenda við Háskóla Íslands
14:20 Uglan, vefkerfi Háskóla Íslands
14.25 Umhverfisstefna Háskóla Íslands
14.35 Kynning frá Félagsstofnun stúdenta
15:00 Kynningarfundir deilda Félagsvísindasviðs. Námstilhögun og upplýsingar
Klukkan 15:00 hefjast kynningarfundir deilda sviðsins nema kynningarfundur Viðskiptafræðideildar sem hefst kl. 16:00. Þar verður greint frá námstilhögun og veittar nánari upplýsingar um nám í viðkomandi greinum.
Kynningarfundir deilda verða í eftirfarandi stofum:
- Stjórnmálafræðideild í O-101
- Lagadeild í L-101
- Félagsráðgjafardeild í Ht-103
- Hagfræðideild í Ht-104
- Mannfræði í O-201
- Félagsfræði í O-106
- Þjóðfræði í O-206
- Viðskiptafræðideild í Hb-1 HEFST KL. 16:00
Kennsla hefst mánudaginn 28. ágúst, en þá byrja jafnframt nýnemadagar Háskóla Íslands.
Gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema má finna á nýnemasíðu Háskóla Íslands, vefsíðu Stúdentaráðs, og á vefsíðu Félagsvísindasviðs.