Ársfundur Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands
Hótel Valaskjálf Egilsstöðum
Ársfundur Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands verður haldinn á Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum 17. mars. Fundurinn hefst kl. 10:00 og honum lýkur kl. 13:00.
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar, flytja ávörp.
Dagskrá
10.00 – 10.05 Sæunn Stefánsdóttir, forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra HÍ býður gesti velkomna
10.05 – 10.15 Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
Opnunarávarp ársfundar
10:15-10:25 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar
Ávarp ráðherra
10.25 – 10.45 Unnur Birna Karlsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Austurlandi
Austurland – efniviður rannsókna. Um ýmis tækifæri til vísindarannsókna á Austurlandi
10.45 – 11.05 Jón Jónsson, þjóðfræðingur við Rannsóknasetur HÍ á Ströndum
Táknmyndir á villigötum: Ímynd svæða og sjálfsmynd íbúa
11.05 – 11.20 Rannveig Þórhallsdóttir, verkefnisstjóri við Rannsóknasetur HÍ á Austurlandi og doktorsnemi
Árþúsund við Atlantshaf. Rannsókn á forn-DNA úr mannvistarlögum í fornleifafræðilegu samhengi
11.20 – 11.35 Theresa Henke, doktorsnemi við Rannsóknasetur HÍ á Vestfjörðum
Involving stakeholders in the research on non-native European flounder (Platichthys flesus) in Iceland
11.35– 11. 50 María Helga Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri við Rannsóknasetur HÍ á Breiðdalsvík
Borkjarnasafn Náttúrufræðistofnunar Íslands: Uppbygging vísindasafns á Breiðdalsvík
11.50 – 12.10 Tómas G. Gunnarsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Suðurlandi, Aldís Erna Pálsdóttir, nýdoktor við Rannsóknasetur HÍ á Suðurlandi og Lilja Jóhannesdóttir, forstöðumaður Náttúrustofu Suðausturlands
Áskoranir og tækifæri við vernd mófugla á mannöld
12.10 – 12. 30 Pallborðsumræður með þátttöku Björns Ingimarsson, bæjarstjóra Múlaþings, Jónu Árnýjar Þórðardóttur, framkvæmdastjóra Austurbrúar, Kristínar Ágústsdóttur, forstöðumanns Náttúrustofu Austurlands og Guðmundar Hálfdanarsonar, formanns ráðsgefandi nefndar Stofnunar rannsóknasetra HÍ
Fundarstjóri er Sæunn Stefánsdóttir, forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra HÍ.
Boðið er upp á súpu í hádeginu.
Fundargestir eru vinsamlega beðnir að skrá sig hér.
Ársfundurinn er öllum opinn. Fundinum verður streymt.
Ársfundur Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands verður haldinn á Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum 17. mars. Fundurinn hefst kl. 10:00 og honum lýkur kl. 13:00.