Skip to main content

Áfangamat: Sverrir Óskarsson

Áfangamat: Sverrir Óskarsson - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
3. apríl 2024 9:00 til 10:00
Hvar 

Aðalbygging

Stofa A-069

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Áfangamat: Sverrir Óskarsson miðvikudaginn 3. apríl kl. 9:00.

Stjórnun menntamála í sveitarfélögum á Íslandi: Hlutverk og starf skólanefnda.

Í rannsókninni er sjónum beint að stjórnun menntamála á sveitarstjórnarstiginu. Rannsakað verður hlutverk og starf skólanefnda sveitarfélaga og áhrif þeirra á starf grunnskóla.

Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Sverrir rannsóknarskýrslu sína kl. 9–10 í stofu A-069 í Aðalbyggingu og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsfólki Menntavísindasviðs. Hægt er að fylgjast með á Zoom: https://eu01web.zoom.us/j/64361895291    

Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrsluna. Fundurinn er öðrum lokaður. Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Mennta­vísinda­svið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.

Prófdómarar eru dr. Berit Karseth prófessor við Háskólann í Osló, Noregi og dr. Börkur Hansen professor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.  Aðalleiðbeinandi er dr. Auður Pálsdóttir dósent við Menntavísindasvið, HÍ og meðleiðbeinandi dr. Ragný Þóra Guðjohnsen lektor við Menntavísindasvið HÍ. Dr. Annadís Greta Rúdólfsdóttir dósent við Menntavísindasvið er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni og Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir er ritari.