Skip to main content

Háskólaráðsfundur 6. september 2012

07/2012

 

HÁSKÓLARÁÐSFUNDUR

Ár 2012, fimmtudaginn 6. september var haldinn fundur í háskólaráði sem hófst kl 13.

Fundinn sátu Kristín Ingólfsdóttir, Anna Rut Kristjánsdóttir, Börkur Hansen, Ebba Þóra Hvannberg, Guðrún Hallgrímsdóttir, Sigvaldi Fannar Jónsson (varamaður fyrir Maríu Rut Kristinsdóttur), Tinna Laufey Ásgeirsdóttir og Þorfinnur Skúlason. Fundinn sat einnig Magnús Diðrik Baldursson sem ritaði fundargerð.

1.    Nýtt háskólaráð skv. lögum um opinbera háskóla nr. 85/2008.
    Áður en gengið var til dagskrár bauð rektor fulltrúa í háskólaráði velkomna til starfa í háskólaráði Háskóla Íslands. Fjallað verður um starfshætti og starfsáætlun háskólaráðs með fullskipuðu ráði á næsta fundi.

2.    Tilnefning þriggja fulltrúa í háskólaráð og eins sameiginlegs varamanns fyrir þá, sbr. 4. tölul. 3. mgr. og 5. mgr. 6. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008.
Samkvæmt lögum nr. 50/2010 um breytingu á lögum um opinbera háskóla nr. 85/2008 tilnefnir háskólaráð, skipað átta fulltrúum, sameiginlega þrjá fulltrúa til viðbótar, auk sameiginlegs varamanns þeirra, til þess að ráðið teljist fullskipað. Rektor bar upp tillögu um að viðbótarfulltrúarnir þrír verði þau Jakob Ó. Sigurðsson, efnafræðingur og MBA, forstjóri Promens hf., Kristinn Andersen, verkfræðingur, rannsóknastjóri Marel og Margrét Hallgrímsdóttir, fornleifafræðingur, þjóðminjavörður. Fyrir fundinum lágu ferilskrár þeirra allra. Málið var rætt.
- Samþykkt einróma.

Þá bar rektor upp tillögu um að sameiginlegur varamaður þeirra þriggja verði Kjartan Þór Eiríksson, viðskiptafræðingur, framkvæmdastjóri KADECO. Fyrir fundinum lá ferilskrá hans. Málið var rætt.
- Samþykkt einróma.

Nýtt háskólaráð fyrir tímabilið 2012-2014 er þannig skipað:

•    Kristín Ingólfsdóttir, prófessor í lyfjafræði og rektor Háskóla Íslands, forseti
•    Anna Rut Kristjánsdóttir, laganemi, fulltrúi tilnefndur af heildarsamtökum nemenda (varamaður Einar Valur Sverrisson, stjórnmálafræðinemi)
•    Börkur Hansen, prófessor við Uppeldis- og menntunarfræðideild Menntavísindasviðs, fulltrúi háskólasamfélagsins (varamaður Hákon Hrafn Sigurðsson, dósent við Lyfjafræðideild Heilbrigðisvísindasviðs)
•    Ebba Þóra Hvannberg, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, fulltrúi háskólasamfélagsins (varamaður Eyvindur G. Gunnarsson, dósent við Lagadeild Félagsvísindasviðs)
•    Guðrún Hallgrímsdóttir, verkfræðingur, fulltrúi mennta- og menningarmálaráðherra (varamaður Stefán Pálsson, sagnfræðingur)
•    Jakob Ó. Sigurðsson, efnafræðingur og MBA, forstjóri Promens, fulltrúi tilnefndur af háskólaráði (varamaður Kjartan Þór Eiríksson, viðskiptafræðingur, framkvæmdastjóri KADECO)
•    Kristinn Andersen, verkfræðingur, rannsóknastjóri Marel, fulltrúi tilnefndur af háskólaráði (varamaður Kjartan Þór Eiríksson, viðskiptafræðingur, framkvæmdastjóri KADECO)
•    Margrét Hallgrímsdóttir, fornleifafræðingur, þjóðminjavörður, fulltrúi tilnefndur af háskólaráði (varamaður Kjartan Þór Eiríksson, viðskiptafræðingur, framkvæmdastjóri KADECO)
•    María Rut Kristinsdóttir, sálfræðinemi, fulltrúi tilnefndur af heildarsamtökum nemenda (varamaður Sigvaldi Fannar Jónsson, laganemi)
•    Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, lektor við Hagfræðideild Félagsvísindasviðs, fulltrúi háskólasamfélagsins (varamaður Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor við Íslensku- og menningardeild Hugvísindasviðs)
•    Þorfinnur Skúlason, íslenskufræðingur, vefþróunarstjóri NOVA, fulltrúi mennta- og menningarmálaráðherra (varamaður Ragnheiður Hulda Proppé, mannfræðingur).

Fleira var ekki gert.
Fundi sitið kl. 13.40.