Skip to main content
25. júní 2015

Verðlaun fyrir afburðaárangur í efnafræði og eðlisfræði

Fjórir nemendur sem útskrifuðust úr grunnnámi í eðlisfræði og efnafræði við Háskóla Íslands vorið 2015 hljóta verðlaun úr Verðlaunasjóði Guðmundar P. Bjarnasonar frá Akranesi í ár. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á Háskólatorgi föstudaginn 26. júní. Nemendurnir, tvær konur og tveir karlar, eiga það sameiginlegt að hafa náð þeim afburðaárangri að hljóta ágætiseinkunn í BS-námi sínu við Raunvísindadeild.

Verðlaunaféð nemur 3,4 milljónum króna og er þetta er með veglegustu verðlaunum sem háskólanemum eru veitt hér á landi. Verðlaunahafar eru Hólmfríður Hannesdóttir, sem hlaut einkunnina 10 á BS-prófi í eðlisfræði, Agnes Eva Þórarinsdóttir, sem hlaut mjög háa ágætiseinkunn á BS-prófi í efnafræði, Sigtryggur Hauksson, sem hlaut mjög háa ágætiseinkunn á BS-prófi í eðlisfræði (hann hlaut einnig mjög háa ágætiseinkunn á BS-prófi í stærðfræði), og Helgi Freyr Jónsson sem hlaut ágætiseinkunn á BS-prófi í efnafræði. Hólmfríður hlýtur eina milljón króna í viðurkenningarskyni fyrir árangurinn og Agnes, Sigtryggur og Helgi 800 þúsund krónur í verðlaun hvert.

Átti ekki kost á að stunda háskólanám

Verðlaunasjóður Guðmundar P. Bjarnasonar frá Akranesi var stofnaður árið 2000 með rausnarlegri gjöf Guðmundar. Hann fæddist á Sýruparti á Akranesi 1909 og bjó um árabil á Höfða, dvalarheimili aldraðra á Akranesi. Hann lést í febrúarmánuði 2006 í hárri elli. Guðmundur átti þess ekki kost að stunda háskólanám en starfaði sem netagerðarmaður og fiskmatsmaður á Akranesi auk þess að stunda útgerð í félagi við bróður sinn. Guðmundur var einn af stofnendum Knattspyrnufélagsins Kára árið 1922 og Taflfélags Akraness árið 1933. 

Ljóst er að hlutfallslega færri nemendur sækja háskólanám í eðlis- og efnafræði á Íslandi en í samanburðarlöndum okkar. Stuðningur Guðmundar við háskólanemendur í eðlis- og efnafræði er því mikilvægt lóð á þá vogarskál að hvetja unga Íslendinga að sækja nám í þessum fögum.

Stjórn Verðlaunasjóðs Guðmundar P. Bjarnasonar frá Akranesi skipa Guðmundur G. Haraldsson, prófessor í efnafræði, sem er formaður, Hafliði Pétur Gíslason, prófessor í eðlisfræði, og Eiríkur Dór Jónsson, fulltrúi Arion banka sem er vörsluaðili sjóðsins samkvæmt skipulagsskrá. 

Nánari upplýsingar um Guðmund og sjóðinn.

Styrkþegar og fulltrúar þeirra við athöfnina á föstudaginn var. Frá vinstri: Agnes, Helgi Freyr, Sigtryggur og Sigríður Ólína Haraldsdóttir sem tók við verðlaununum fyrir hönd dóttur sinnar, Hólmfríðar Hannesdóttur.
Styrkhafar ásamt stjórn Verðlaunasjóðs Guðmundar P. Bjarnasonar frá Akranesi.
Styrkþegar og fulltrúar þeirra við athöfnina á föstudaginn var. Frá vinstri: Agnes, Helgi Freyr, Sigtryggur og Sigríður Ólína Haraldsdóttir sem tók við verðlaununum fyrir hönd dóttur sinnar, Hólmfríðar Hannesdóttur.
Styrkhafar ásamt stjórn Verðlaunasjóðs Guðmundar P. Bjarnasonar frá Akranesi.