Skip to main content
30. janúar 2015

Tuttugu lið taka þátt í LEGO-hönnunarkeppni á morgun

Von er á hátt í 200 grunnskólanemendum á aldrinum 9-16 ára til þátttöku í tækni- og hönnunarkeppni grunnskólanemenda, FIRST LEGO League (FLL), sem haldin verður laugardaginn 31. janúar í Háskólabíói.

Markmiðið með keppninni er að blása ungu fólki í brjóst löngun til að skara fram úr á sviði tækni og vísinda. Boðið er upp á spennandi verkefni sem efla færni í vísindum, verkfræði og tækni, örva nýsköpun og byggja upp hæfileika eins og sjálfstraust og samskipta- og forystuhæfni. Á hverju ári er keppninni valið ákveðið þema sem er ofarlega á baugi í heiminum og í verður þemað Skóli framtíðarinnar.

Keppninni er skipt í fimm hluta. Meðal verkefna keppenda er að forrita vélmenni úr tölvustýrðu Mindstorms LEGO-i til að leysa tiltekna þraut sem tengist þema keppninnar. Þá eiga keppendur að gera vísindalega rannsókn á ákveðnu efni sem einnig er tengt þemanu og jafnframt að halda ítarlega dagbók um undirbúning fyrir keppnina.  Enn fremur flytja keppnisliðin frumsamið skemmtiatriði (valfrjálst) og að lokum þurfa þau að gera grein fyrir því hvernig þau forrituðu vélmennið sitt.

Sigurvegari reynir sig á heimsmeistaramóti FIRST LEGO League

20 lið víðs vegar af landinu hafa skráð sig til leiks en til samanburðar voru þau þrettán í fyrra og því ljós að áhuginn fyrir keppninni er að aukast. Á bilinu 6-10 manns eru í hverju liði ásamt fullorðnum leiðbeinanda en öll lið fengu senda þrautabraut ásamt upplýsingum um rannsóknarverkefni í október.

Dagskrá keppninnar hefst kl. 9 á laugardagsmorgun í Háskólabíói og reiknað er með að sigurvegarar verði krýndir um klukkan 15.30. Það lið sem ber sigur úr býtum á kost á að keppa á heimsmeistaramóti FIRST LEGO League sem haldið verður í St. Louis í Bandaríkjunum í vor. Auk verðlauna fyrir sigur í keppninni eru m.a. veitt verðlaun fyrir bestu lausn í hönnun á vélmenni og forritun, besta rannsóknarverkefnið og bestu dagbók og liðsheild. Allir þátttakendur fá FLL-medalíu í viðurkenningarskyni.

Allir eru boðnir velkomnir að fylgjast með spennandi og skemmtilegri keppni í Háskólabíói.

Háskóli Íslands heldur utan um keppnina og meginbakhjarl er Nýherji.

Upplýsingar um keppnina má nálgast á heimasíðu, www.firstlego.is og Facebook-síðu keppninnar.

Nokkrir þátttakendur í First Lego league