Skip to main content
21. apríl 2015

Þrír styrkir til doktorsrannsókna í öldrunarfræðum

Sjálfseignarstofnun St. Jósefsspítala afhenti þann 15. apríl þrjá styrki til doktorsnáms við Háskóla Íslands tengda Rannsóknarstofu Landspítala og Háskóla Íslands í öldrunarfræðum (RHLÖ).

Allir styrkirnir eru til þriggja ára og einskorðast við doktorsnema á öldrunarfræðasviði og leiðbeinendur frá Háskóla Íslands og/eða Landspítala þar sem úrvinnsla gagna er unnin í húsakynnum RHLÖ.

Bergþóra Baldursdóttir, sérfræðingur í sjúkraþjálfun og doktorsnemi við Læknadeild, ásamt rannsóknarteymi fékk styrk fyrir verkefnið „Jafnvægisstjórnun hjá einstaklingum sem hlotið hafa úlnliðsbrot í kjölfar byltu og áhrif skynþjálfunar“. Leiðbeinandi hennar er Ella K. Kristinsdóttir, dósent emertius við Læknadeild. Í umsögn dómnefndar kom fram að rannsóknin gæti skilað þekkingu á gagnsemi forvarna gegn byltum og beinbrotum og með þeim hætti aukið lífsgæði og bætt þjónustu heilbrigðiskerfisins svo og dregið úr kostnaði sem hlýst af byltum og brotum. 

Unnur Diljá Teitsdóttir, doktorsnemi við Læknadeild, hlaut ásamt rannsóknarteymi styrk fyrir verkefnið „Mat á hæfni magnbundinna heilarita og mögulegra lífvísa í heila- og mænuvökva til forspár um framvindu og greiningar á heilabilun“. Leiðbeinandi hennar er Pétur Henry Petersen, dósent við Læknadeild. Í umsögn dómnefndar kom fram að rannsóknin undirstrikaði mikilvægi snemmgreiningar heilabilunar og leitar að leiðum til að gera slíkar rannsóknir einfaldar til að minnka inngrip við sjúkdómsgreiningu.

Laufey Steingrímsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild, ásamt rannsóknarteymi fékk styrk fyrir verkefnið „Hvað einkennir mjaðmarbrotahópinn í öldrunarrannsókn Hjartaverndar“. Ekki liggur fyrir hver doktorsneminn verður. Í umsögn dómnefndar kemur fram að rannsóknarverkefnið muni geta nýst í forvörnum gegn mjaðmarbrotum í framtíðinni, bæði hérlendis og erlendis, þar sem rannsóknin nái til fleiri þátta en flestar aðrar sambærilegar rannsóknir og til stórs hóps aldraðra af báðum kynjum.

Dómnefnd var skipuð Sigurveigu H. Sigurðardóttur, dósent við Félagsráðgjafardeild (formaður), Helgu Ögmundsdóttur, prófessor við Læknadeild, Ingibjörgu Hjaltadóttur, dósent við Hjúkrunarfræðideild, og Kristjáni Erlendssyni, dósent við Læknadeild.

Styrktarsjóður Sjálfseignarstofnunar St. Jósefsspítala, sem hefur það að markmiði að stuðla að þverfaglegum  öldrunarrannsóknum við RHLÖ, mun auglýsa tvo doktorsnemastyrki lausa til umsóknar fyrir janúar 2016, bæði opna styrki og til áframhaldandi vinnslu á gögnum úr öldrunarrannsókn Hjartaverndar. Doktorsnemar eða leiðbeinendur við allar deildir Háskóla Íslands og Landspítala geta sótt um styrkina.

Á myndinni eru Sigurveig H Sigurðardóttir formaður dómnefndar (fyrir aftan) og styrkþegar, Laufey Steingrímsdóttir, Unnur Diljá Teitsdóttir og Bergþóra Baldursdóttir.