Skip to main content
20. nóvember 2018

Sound of Vision í úrslit Nýsköpunarverðlauna ESB

""

Evrópska rannsóknarverkefnið Sound of Vision, sem vísindamenn við Háskóla Íslands hafa haft forystu um, keppir til úrslita um Nýsköpunarverðlaun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Innovation Radar Prize 2018, sem afhent verða í Vín í desember.

Sound of Vision verkefnið hefur staðið yfir undanfarin þrjú ár en það hlaut alls fjögurra milljóna evra styrk úr rannsóknaráætlun Evrópusambandsins, Horizon 2020, árið 2015. Markmið þess er að þróa hátæknibúnað til þess að hjálpa blindum og sjónskertum að skynja umhverfi sitt. Verkefnið lýtur forystu Rúnars Unnþórssonar, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands, en auk hans koma Árni Kristjánsson, prófessor við Sálfræðideild, og hópur nýdoktora, doktorsnema og rannsóknarmanna innan skólans að verkefninu ásamt Blindrafélagi Íslands og verkfræðingum frá háskólum og stofnunum í fjórum öðrum Evrópulöndum, Rúmeníu (University Politehnica of Bucharest), Ítalíu, Póllandi og Ungverjalandi.

Mörg þúsund verkefni, sem notið stuðnings á vegum Horizon 2020 rannsóknaráætlunar Evrópusambandsins, voru rýnd fyrir keppnina og á endanum tilnefndi dómnefnd 50 verkefni í fimm flokkum til verðlaunanna. 

Sound of Vision var tilnefnt í flokknum „Tækni fyrir samfélag“ ásamt níu öðrum verkefnum en eins og nafnið gefur til kynna er þar að finna verkefni sem hafa mjög jákvæð áhrif á samfélög og líf fólks. Almenningi gafst svo kost á að velja bestu verkefnin í hverjum flokki í sérstakri netkosningu á vefsíðu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og stóð sú kosning til 12. nóvember. Í þeirri kosningu hafnaði Sound of Vision í þriðja sæti í sínum flokki en fjögur efstu verkefnin í hverjum flokki komust í úrslit verðlaunanna. Það er því ljóst að Sound of Vision verður meðal þeirra 20 nýsköpunarverkefna sem kynnt verða fyrir dómnefnd skipaðri sérfræðingum í úrslitunum í Vín í Austurríki í byrjun desember. Þar verða krýndir sigurvegarar í hverjum flokki fyrir sig og jafnframt einn sigurvegari (Grand Prix) í heildarkeppninni. 

Meðal búnaðarins sem þróaður hefur verið innan Sound of Vision verkefnisins er skynbelti sem sett er utan um mitti notandans þar sem það nemur upplýsingar úr umhverfinu og miðlar þeim til notanda fyrir tilstilli lítilla mótora sem titra, hver með sínu lagi ef svo má segja. Beltið nýtist einnig þeim sem einhverra hluta vegna geta ekki notað hefðbundin skynfæri tímabundið. Það getur átt við starfsfólk í ýmsum aðstæðum, eins og við reykköfun eða öryggisgæslu í hávaða.  Þróun búnaðarins hefur verið unnin í góðu samstarfi við blint og sjónskert fólk hér á landi og stefnt er að því stofna sprotafyrirtæki í kringum hugmyndina á næsta ári með það fyrir augum að koma búnaðinum í almenna notkun.

Myndband sem skýrir virkni búnaðarins 

Heimasíða Sound of Vision

Hluti af búnaðinum sem hannaður hefur verið innan Sound of Vision verkefnisins