Skip to main content
23. janúar 2017

Skiptinám í Evrópu - kynningarfundir

Nemendum sem hyggjast sækja um skiptinám í Evrópu gefst kostur á að kynna sér umsóknarferlið á kynningarfundum sem Skrifstofa alþjóðasamskipta heldur á næstu þremur vikum. Mælst er til þess að nemendur hafi kynnt sér skiptinám vel, skoðað mögulega háskóla og horft á kynningarmyndband um skiptinám fyrir fundina.

Fyrsti fundurinn er á dagskrá þriðjudaginn 24. janúar kl. 12-13 í stofu 104 á Háskólatorgi.

Næstu fundir:

  • 26. janúar kl. 15-16 í stofu HT-300
  • 7. febrúar kl. 15-16 í stofu HT-300
  • 13. febrúar kl. 12-13 í stofu HT-300

Háskóli Íslands er í samstarfi við yfir 400 háskóla víða um heim og árlega nýta sér fjölmargir að taka hluta af námi sínu erlendis og sækja sér þannig sérhæfingu í námi og dýrmæta reynslu. Skiptinámið er metið inn í námsferil við HÍ.

Kostir þess að fara í skiptinám:

  • fjölbreyttara námsframboð
  • skiptinámið er metið inn í námsferil við Háskóla Íslands
  • tækifæri til að kynnast menningu annarra landa
  • einfaldara og ódýrara en að fara í nám á eigin vegum
  • skólagjöld eru felld niður, m.a. við háskóla í Bandaríkjunum og Kanada
  • aukin tungumálakunnátta
  • dýrmæt reynsla sem nýtist í frekara námi eða á vinnumarkaði

Frestur til að skila inn umsókn um skiptinám í Evrópu skólaárið 2017-2018 er 1. mars 2017.

Sjá nánari upplýsingar um umsóknarferlið og námsmöguleika á http://www.hi.is/skiptinam