Skip to main content
9. febrúar 2024

Siggasophy er nýtt hlaðvarp um heimspeki

Siggasophy er nýtt hlaðvarp um heimspeki - á vefsíðu Háskóla Íslands

Siggasophy er nýtt hlaðvarp í umsjón Sigríðar Þorgeirsdóttur, prófessors í heimspeki við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði Háskóla Íslands. Umfjöllunarefni hlaðvarpsins er heimspeki, hennar eigin hugmynd um víða heimspeki. „Vegna þess að mig langar að koma heimspeki og heimspekilegum þankagangi út til fleiri en bara fagheimspekinga. Ég vil hafa viðtalsþættina áheyrilega á þann hátt að þetta séu ekki bara fyrir fram spurningar og undirbúin svör. Sigguspeki er ekki gáfumannaleikur. Helst vil ég að hugsun geti „gerst“ í þáttunum, að ég og viðmælandi hugsum saman. Auk þess stefni ég á að gera þætti þar sem ég kynni einstök heimspekileg málefni og fílósófera þá bara sjálf. Ég er jú líka bara að skemmta sjálfri mér,“ segir Sigríður.

Viðmælendur Sigríðar í hlaðvarpinu eru ekki allt heimspekingar heldur fólk héðan og þaðan sem fílósóferar og má þar t.d. nefna Rán Flygenring, rithöfund og myndlistarkonu, og Sigríði Hagalín Björnsdóttur, rithöfund og fréttakonu.

Sigríður hefur birt átta þætti sem má nálgast á hlaðvarpsveitum, þ. á m. á Spotify. Hún segist hafa valið þessa miðlunarleið vegna þess að sér virðist sem mörg njóti þess að hlusta á hlaðvörp. „Fólk fer út að ganga og er með þátt í eyrunum. Fólki finnst það gefa sér eitthvað annað en að horfa á myndefni. Kannski er meira rým fyrir eigin hugsun og ímyndunarafl þegar bara er hlustað.  Þegar við kveikjum á sjónvarpi, sem er meira umlykjandi miðill, slökkvum við á okkur sjálfum. Eftir langan dag getum við haft þörf fyrir það. Þegar við hlustum á hlaðvarpsþátt og reynum að heyra og skilja förum við að heyra í okkar eigin hugsunum. Það er eitthvað róandi við að hlusta,“ segir Sigríður.

Katrín Ólína, samstarfskona Sigríðar í Smáspeki eða Minisophy, hannað einkennismerki Siggusophy sem er mannvera sem heldur á stóru eyra.

Hlaðvarpsþættirnir eru ýmist á íslensku og ensku og segir Sigríður að ensku þættirnir eigi að miðla heimspeki frá Íslandi og úr því samhengi sem sá veruleiki skapi okkur. Nafn hlaðvarpsins, Siggasophy, segir Sigríður þannig til komið að hún hafi verið samferða heimspekinni í lífinu: „Ég tek sjálfa mig ekki ofuralvarlega í þessum þáttum. Ég er bara Sigga. En ég tek heimspekina alvarlega, hana Soffíu. Hún veit ekki allt, hún er bara að reyna að átta sig og njóta þess að hugsa. Hún er frekar afslöppuð því að það að vera ósammála kemur henni ekki úr jafnvægi. Hún vill frekar reyna að fatta hvers vegna hin/n sér hlutina öðruvísi. Sigguspeki er deild innan Minisophy sem er annað verkefni til að miðla heimspekilegri hugsun sem lifandi hugsun. Við getum öll skilið hvert annað betur ef við tölum og hugsum frá dýpri stað sem sameinar okkur öll í leit að skilningi. Soffía er innra með okkur öllum ef við bara hlustum eftir henni. Hjá okkur sjálfum og hinum.“ 

Anne Siegel, samdi stef fyrir þáttinn sem hún kallar Fegurð lifandi hugsunar og Katrín Ólína, samstarfskona Sigríðar í Smáspeki eða Minisophy, hannað einkennismerki Siggusophy sem er mannvera sem heldur á stóru eyra.

Sigríður Þorgeirsdóttir prófessor við upptöku á Siggasophy, nýju hlaðvarpi um heimspeki.