Skip to main content
22. nóvember 2016

Samstarf við Landmælingar Íslands á sviði fjarkönnunar

Háskóli Íslands og Landmælingar Íslands gerðu á dögunum með sér samstarfssamning á sviði fjarkönnunar sem tekur við af eldri samningi stofnananna. Það voru þeir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga, sem undirrituðu samninginn.

Samkvæmt samningnum hyggjast Landmælingar Íslands og Háskóli Íslands vinna saman að eflingu fjarkönnunarrannsókna á Íslandi. Í því felst m.a. að Háskóli Íslands verður aðili að fjarkönnunarstarfsemi hjá Landmælingum Íslands og að stofnanirnar tvær munu skiptast á fjarkönnunargögnum. Einnig munu stúdentar við Háskóla Íslands geta stundað nám í fjarkönnun í nánu samstarfi við Landmælingar Íslands.

Dr. Kolbeinn Árnason, sérfræðingur sem starfar við fjarkönnun hjá Landmælingum Íslands, verður sameiginlegur starfsmaður stofnananna tveggja með aðsetur hjá Landmælingum en starfsaðstöðu við Verkfræðistofnun Háskóla Íslands.

Samningur Háskóla Íslands og Landmælinga gildir til 1. nóvember 2019. 

Frá undirritun samningsins á dögunum. Fremri röð frá vinstri: Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands. Efri röð frá vinstri: Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor kennslu og þróunar, Hilmar B. Janusson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, aðstoðarektor vísinda, og Kolbeinn Árnason, sameiginlegur starfsmaður stofnananna.