Skip to main content
27. apríl 2016

Samstarf um nám í fjölmiðla- og boðskiptafræði

Samningur um sameiginlegt nám í fjölmiðla- og boðskiptafræði við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands og hug– og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri var formlega undirritaður á Akureyri sl. föstudag. Um er að ræða samning sem innsiglar samstarf skólanna um diplóma- og meistaranám á þessu sviði. Í samningnum segir að markmið hans sé að stuðla að „vandaðri menntun og rannsóknum í fjölmiðla- og boðskiptafræðum“. Undirskriftin kemur í kjölfar þess að nokkur reynsla hefur fengist af þessu sameiginlega námi, en boðið var upp á það í fyrsta sinn í fyrrahaust og hafa á milli 15-20 nemendur verið skráðir í það í vetur.

Fram kom við undirskriftina að góður rómur hefur verið gerður að náminu hjá nemendum og jafnframt hafa kennarar beggja skóla fagnað þessum samstarfsvettvangi enda stuðli hann einnig að rannsóknasamstarfi. Til marks um það má nefna að samhliða þessu sameiginlega námsframboði er verið að setja á fót Rannsóknarstofnun um fjölmiðla og boðskipti þar sem þessir tveir háskólar hafa fengið til liðs við sig ýmsa aðila sem tengjast fjölmiðlum í því skyni að skapa vettvang til ýmiss konar rannsókna og ráðstefnuhalds. Við undirritun samstarfssamningsins var jafnframt undirrituð viljayfirlýsing skólanna um rannsóknasamstarf á þessum vettvangi.

Það voru þau Sigrún Stefánsdóttir, forseti hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri, og Daði Már Kristófersson, forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands, sem skrifuðu undir samninginn að viðstöddum Eyjólfi Guðmundssyni, rektor Háskólans á Akureyri.

Allar upplýsingar um námið má finna í ítarlegum kynningarbæklingi hér.

Umsóknarfrestur er 5. júní hjá Háskólanum á Akureyri í MA- og diplómanámið og 5. júní í Háskóla Íslands í diplómanámið. Nánari upplýsingar i Háskóla Íslands veitir Margrét S. Björnsdóttir í síma 525-4254 eða msb@hi.is.

Það voru þau Sigrún Stefánsdóttir, forseti hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri, og Daði Már Kristófersson, forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands, sem skrifuðu undir samninginn að viðstöddum Eyjólfi Guðmundssyni, rektor Háskólans á Akureyri.
Sigrún Stefánsdóttir, Eyjólfur Guðmundsson, Daði Már Kristófersson
Sigrún Stefánsdóttir, Eyjólfur Guðmundsson, Daði Már Kristófersson