Skip to main content
15. maí 2017

Nýtt nám í Rússlands- og Austur-Evrópufræði

Nýtt nám í Rússlands- og Austur-Evrópufræði - á vefsíðu Háskóla Íslands

Nýtt diplómanám í Rússlands- og Austur-Evrópufræði er nú í boði við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Námið veitir nemendum með svæðisbundinn áhuga á Austur-Evrópu tækifæri til að stunda rannsóknarnám og byggja upp sérhæfða þekkingu á einu eða fleiri ríkjum þessa svæðis.

Í haust miðast námið við tvö lönd sérstaklega, Rússland og Pólland, en stefnt er að því að síðar gefist nemendum kostur á að fleiri möguleikum til sérhæfingar. Hægt er að ljúka náminu á einu ári og er þá fyrra misserinu varið við Háskóla Íslands en því seinna við samstarfsskóla í Rússlandi eða Póllandi.

Ætlast er til að nemendur hafi kunnáttu í einu tungumáli (rússnesku eða pólsku) til að geta lokið náminu. Þeir sem ekki hafa tilskilda kunnáttu við upphaf námsins velja í samráði við umsjónarmann þess heppilega leið til að uppfylla þetta skilyrði.

Um er að ræða 60 eininga viðbótardiplóma. Umsóknarfrestur er til 5. júní.

Hér er hægt að sækja um framhaldsnám við Háskóla Íslands.

Nánari upplýsingar í Kennsluskrá Háskóla Íslands.

""