Skip to main content
26. maí 2016

Meistaranemar kynna verkefni á sviði menntavísinda

""

Fjölbreyttar rannsóknir á sviði menntavísinda verða kynntar á málþingi meistaranema sem fram fer í Háskóla Íslands föstudaginn 27. maí nk. frá kl. 9-16. Þar munu M.Ed.- og MA-nemar sem útskrifast í júní flytja stuttar kynningar á lokaverkefnum sínum.

Um eitt hundrað erindi í 35 málstofum verða flutt á málþinginu og eru viðfangsefnin af ýmsum toga. Meðal þess sem fjallað verður um er námsumhverfi í grunnskóla, list- og verkmenntun, iðnmeistaranám, leiklist og lífsleikni í grunnskóla, sjálfbærni, náttúrufræði, spjaldtölvur í kennslu, læsi, ritun, menntun og margbreytileiki, uppeldisaðferðir foreldra og sjálfstjórn barna og ungmenna, lýðræði í leik- og grunnskóla, íþrótta- og heilsufræði, stjórnun menntastofnana og margt fleira. Flutt verða erindi bæði á íslensku og ensku. 

Mikill vöxtur hefur verið í framhaldsnámi við Menntavísindasvið undanfarin ár en sviðið menntar kennara fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, uppeldis- og menntunarfræðinga, íþrótta- og heilsufræðinga, tómstunda- og félagsmálafræðinga og þroskaþjálfa.

Ókeypis er á málþingið og er það öllum opið. 

Dagskrá málþingsins og nánari upplýsingar um einstaka málstofur má finna á vefsíðu Háskóla Íslands.

Brautskráning
Brautskráning