Skip to main content
20. apríl 2016

Læknanemi á þriðja ári með besta vísindaerindið

""

Á nýafstöðnu sameiginlegu vísindaþingi Skurðlæknafélags Íslands, Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags Íslands, Félags Fæðinga- og kvensjúkdómalækna og Fagdeilda skurðstofu- og svæfingahjúkrunarfræðinga var haldin keppni um besta vísindaerindi unglæknis eða læknanema.

Fimm erindi voru valin af þeim 40 sem send voru inn á þingið og kepptu þau um Heiðursverðlaun Jónasar Magnússonar prófessors. Sigur úr býtum bar Rósamunda Þórarinsdóttir, læknanemi á þriðja ári við Háskóla Íslands, fyrir verkefnið „Árangur magahjáveituaðgerða á Íslandi árin 2001-2015“ en leiðbeinendur hennar voru skurðlæknarnir Björn Geir Leifsson og Hjörtur Gíslason. Þetta er í fyrsta skipti sem þriðja árs læknanemi vinnur þessi verðlaun. 

Þingið var mjög vel sótt og gekk vel í alla staði. 

Frá vinstri: Einar Stefán Björnsson, prófessor og formaður dómnefndar, Einar Teitur Björnsson, deildarlæknir á Landspítala, Hannes Halldórsson, læknanemi á fjórða ári, sigurvegarinn Rósamunda Þórarinsdóttir, læknanemi á þriðja ári, Kristín María Guðjónsdóttir, kandídat á Landspítala, Elva Dögg Brynjarsdóttir, deildarlæknir á Sjúkrahúsi Akureyrar, auk Kristínar Huldar Haraldsdóttur, sem stýrði athöfinni en Kristín var kjörin formaður Skurðlæknfélags Íslands á þingu, önnur kvenna.