Skip to main content
18. mars 2022

Íslensk jöklavefsjá opnuð um helgina

Íslensk jöklavefsjá opnuð um helgina - á vefsíðu Háskóla Íslands

Íslensk jöklavefsjá, islenskirjoklar.is, verður formlega opnuð í stjörnuveri Perlunnar sunnudaginn 20. mars kl. 14 í samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands. Helgi Björnsson og Oddur Sigurðsson jöklafræðingar opna jöklavefsjána en auk þeirra munu sérfræðingar Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnunar Háskólans og Landsvirkjunar fjalla um jöklamælingar, sýna ljósmyndir af jöklum og fara yfir virkni vefsjárinnar og gögn sem hún sýnir.

Að kynningum loknum mun Hilmar Malmquist, forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands, bjóða gestum á sýningu safnsins, Vatnið í náttúru Íslands, og „Vorferð“, sérsýningu um sögu Jöklarannsóknafélags Íslands (JÖRFÍ). 

Jöklavefsjáin birtir mælingar og yfirlit um rannsóknir og breytingar á íslenskum jöklum, þar á meðal sporðamælingar og gögn um útbreiðslu og afkomu jöklanna. Vefsjáin birtir einnig fjölmargar ljósmyndir frá mismunandi tímum. Samanburðarljósmyndir sem teknar eru á sama stað með sama sjónarhorni sýna skýrt breytingarnar sem eru að verða á íslensku jöklunum með sívaxandi hraða.

joklar

Jöklavefsjáin er samstarfsverkefni Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnunar Háskólans, Landsvirkjunar, JÖRFÍ, Landmælinga Íslands og Náttúrustofu Suðausturlands. Hægt er að nálgast mæligögn og athuganir sem safnað er með reglubundnum hætti af innlendum stofnunum, fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum. Gagnasafnið verður uppfært jafnharðan og nýjar mælingar eru gerðar. Jöklavefsjáin býður upp á fjölmargar ljósmyndir af jöklum sem sýna vel þær sláandi breytingar sem orðið hafa á jöklum hér á landi á síðustu áratugum. Meðal þeirra eru samanburðarmyndir sem teknar eru á sama stað með sama sjónarhorni eða unnar í tölvu til þess að sýna slíkan samanburð. Myndirnar af Fjallsjökli hér að ofan eru unnar af Kieran Baxter við Háskólann í Dundee og byggja á loftmynd frá Landmælingum Íslands frá 1988 og ljósmynd tekinni úr flygildi árið 2021.

Loftslagssjóður og verkefnið „Hörfandi jöklar“ á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins styrkja smíði og rekstur jöklavefsjárinnar. Aðrir samstarfsaðilar eru Vatnajökulsþjóðgarður og Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Hornafirði.
 

Jón Eyþórsson hóf skipulegar mælingar á stöðu jökulsporða víða um land árið 1930 og fékk heimamenn til liðs við sig við mælingarnar. Sjálfboðaliðar JÖRFÍ hafa séð um mælingarnar frá stofnun félagsins 1950. Afkoma Vatnajökuls, Hofsjökuls og Langjökuls er mæld árlega af starfsmönnum Jarðvísindastofnunar, Veðurstofunnar og Landsvirkjunar og afkoma Mýrdalsjökuls af félögum JÖRFÍ. Jón Eyþórsson skoðar klakahöll í Esjufjöllum um páskana 1951 (úr ljósmyndasafni Sigurjóns Rist).

Jöklavefsjáin kemur upplýsingum um jökla og jöklabreytingar á framfæri við almenning og áhugafólk um náttúruvísindi og áhrif loftslagsbreytinga á náttúru landsins. Hún gefur jafnt vísindamönnum, nemendum í skólum landsins og áhugasömum almenningi kost á að kynna sér jöklamælingar og nálgast mæligögn og aðrar upplýsingar. Undirliggjandi vefþjónustur sem sýna útlínur jökla á mismunandi tímum og fleiri mælingar bjóða upp á hagnýtingu hjá ýmsum aðilum sem fást við greiningu landupplýsinga og rannsóknir á náttúru landsins, m.a. sérfræðingum í orkuiðnaði, samgöngum, ferðaþjónustu og á fleiri sviðum. Gögn í jöklavefsjá eru opin til afnota í hvers kyns verkefnum með stöðluðum skilmálum sem nú eru að ryðja sér til rúms í vísindaheiminum í tengslum við opið aðgengi að vísindagögnum. Jöklavefsjáin veitir opinn aðgang í fyrsta sinn að mörgum gagnanna sem hún sýnir.

Skipulegar mælingar frá 1930

Jón Eyþórsson hóf skipulegar mælingar á stöðu jökulsporða víða um land árið 1930 og fékk heimamenn til liðs við sig við mælingarnar. Sjálfboðaliðar JÖRFÍ hafa séð um mælingarnar frá stofnun félagsins 1950. Afkoma Vatnajökuls, Hofsjökuls og Langjökuls er mæld árlega af starfsmönnum Jarðvísindastofnunar, Veðurstofunnar og Landsvirkjunar og afkoma Mýrdalsjökuls af félögum JÖRFÍ. Útlínur jökla á ýmsum tímum hafa verið dregnar eftir loftmyndum, gervitunglamyndum, kortum og leysimælingum á yfirborði jökla en einnig raktar með GPS-mælingum og greiningu á jökulgörðum og öðrum jarðfræðilegum ummerkjum um fyrri stöðu jökulsporða.

Um Vorferð

Vorferð er sýning í Dropanum, sérsýningarrými Vatnasýningar, sem sett var upp í nóvember 2021 í tilefni af 70+1 ára afmæli Jöklarannsóknafélagsins, í samstarfi félagsins og Náttúruminjasafnsins. Sýningin varpar ljósi á sögu félagsins, segir frá skálabyggingum, ferðalögum á jökli, sporðamælingum, rannsóknarverkefnum sem unnið hefur verið að í vorferðum á Vatnajökul, jöklabakteríunni og tímaritinu Jökli.

Upphafsskjár jöklavefsjár með þekjuvali, útlínum jökla undir lok 19. aldar og árið 2019 og punktum sem bjóða upp á upplýsingar um jökla og sporðamælingar þegar smellt er á þá.