Skip to main content
9. febrúar 2024

Inngilding, jaðarsetning og mannréttindi á Jafnréttisdögum

Inngilding, jaðarsetning og mannréttindi á Jafnréttisdögum - á vefsíðu Háskóla Íslands

Rétturinn til mótmæla, inngilding í stjórnmálum og samfélagi, aðgerðir gegn hatursorðræðu, áskoranir íslensks fjölmenningarsamfélags og hvít forréttindi og rasismi er meðal þess sem verður til umfjöllunar á árlegum Jafnréttisdögum sem fram fara í háskólum landsins dagana 12.-15. febrúar. 

Jafnréttisdagar hafa fyrir löngu unnið sér sess sem vettvangur frjórrar, róttækrar og framsýnnar umræðu um ólíkar víddir jafnréttismála en dagarnar eru nú haldnir í 16. sinn. Markmiðið með Jafnréttisdögum er í senn að skapa umræðu um jafnréttismál í víðum skilningi og að gera þau sýnileg innan háskólanna sem utan.

Þema Jafnréttisdaga í ár er Inngilding, jaðarsetning og aðför að mannréttindum og boðið er upp á yfir 20 viðburði í háskólum landsins, ýmist á staðnum, í streymi eða hvort tveggja. 

Dagskrá Jafnréttisdaga hefst á viðburði í streymi í hádeginu mánudaginn 12. febrúar en þar fjalla stjórnmálafólkið Pawel Bartoszek og Sanna Magdalena meðal annars um aðgengi fólks af erlendum uppruna að stjórnmálum og hvernig hægt er að koma málefnum fólks af erlendum uppruna betur á dagskrá þings og sveitarstjórna.

Í framhaldinu rekur hver viðburðurinn annan og auk ofangreindra umfjöllunarefna verður fjallað um stríð og átök í samtímanum, veruleika transfólks, stöðu fólks með örorkumat, konur á flótta, aðgengi ólíkra hópa að háskólanámi, fjölbreyttar raddir íslenskunnar, fjölbreytileika og menningarnæmi, umfjöllun fjölmiðla um leikskólamál ásamt því sem boðið verður upp á jafnréttisvöfflur og -kaffi og umræður með því.

Viðburðir á Jafnréttisdögum fara ýmist fram á íslensku eða ensku og aðgangur að þeim öllum er ókeypis. Heildardagskrá má finna á vef Jafnréttisdaga. Öll eru jafnframt hvött til að fylgjast með Jafnréttisdögum á samfélagsmiðlum.

Vefur: jafnrettisdagar.is
Facebook: jafnrettisdagar
Instagram: jafnrettisdagar
 

""