Skip to main content
13. júní 2023

Illska og óhugnaður í Ritinu

Illska og óhugnaður í Ritinu - á vefsíðu Háskóla Íslands

Rannsóknir á illsku og óhugnaði eru þema fyrsta heftis Ritsins á þessu ári sem nú er komið út. Undir hatti þemans birtast þrjár ritrýndar greinar sem eiga það sameiginlegt að fjalla um illsku og óhugnað í íslenskum samtímabókmenntum. Vera Knútsdóttir greinir skáldsögurnar Hvítfeld: fjölskyldusaga (2012) eftir Kristínu Eiríksdóttur og Ég man þig (2010) eftir Yrsu Sigurðardóttur og dregur fram hvernig skáldkonurnar beita fagurfræði hins ókennilega til að takast á við atburði fjármálahrunsins árið 2008. Sunna Dís Jensdóttir skoðar aftur á móti hvernig gotnesk skáldskapareinkenni í skáldsögunni Börnin í Húmdölum (2004) eftir Jökul Valsson eru notuð til að miðla óhugnaði og varpa ljósi á ýmis falin samfélagsmein, ekki síst vanrækslu og ofbeldi á börnum. Þá fjallar Marteinn Knaran Ómarsson um raðmorðingja einkum með hliðsjón af glæpasögunni Kóperníku (2021) eftir Sölva Björn Sigurðsson. Marteinn Knaran ræðir algengar hugmyndir fólks um persónugerð raðmorðingja og sýnir hvernig Sölvi Björn vinnur með þær í skáldsögu sinni um leið og hann snýr út úr þeim.

Í heftinu birtist einnig óritrýnd grein eftir Steindór J. Erlingsson. Hann hefur háð baráttu við erfitt þunglyndi um árabil en eins og kemur fram í grein hans rekur hann veikindi sín til illskunnar sem hann varð vitni að sem ungur maður í Eþíópíu. Í skrifum sínum fjallar Steindór á næman hátt um veikindi sín og dregur fram hvaða gildi skáldskapur getur haft til að takast á við vanlíðan. Innan þemans má jafnframt finna þrjá pistla eftir Arnfríði Guðmundsdóttur, Ármann Jakobsson og Sigríði Þorgeirsdóttur en hvert og eitt þeirra fjallar um illsku út frá sínu sérsviði; guðfræði, miðaldabókmenntum og heimspeki. Þá birtist líka þýðing Öldu Bjarkar Valdimarsdóttur á bókarkaflanum „Samlíðan og samkennd“ eftir sálfræðiprófessorinn Paul Bloom. Þýðingunni fylgir greinargóður inngangur Öldu Bjarkar þar sem hún fjallar um rannsóknir Bloom á hugarstarfsemi, siðferði og tilfinningum.

Tvær greinar falla utan þema. Hjalti Hugason fjallar um birtingarmyndir dauðans og trúarinnar í ljóðheimi Hannesar Péturssonar á meðan að Finnur Dellsén tekst á við spurninguna: „Fyrir hverja eru fræðin?“ með aðferðum heimspekinnar.

Ritstjóri heftisins er Guðrún Steinþórsdóttir. Um umbrot sá Helgi Hilmarsson og Dagbjört Guðmundsdóttir um prófarkalestur. Málverkið á kápu Ritsins er eftir Þránd Þórarinsson.

Hugvísindastofnun Háskóla Íslands gefur Ritið út í opnu og rafrænu formi á ritid.hi.is.