Skip to main content
7. júlí 2015

Hlýtur styrk til þjálfunar doktorsnema

Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands, hefur ásamt samstarfsfólki sínu hlotið tæplega 500 milljóna króna styrk til þjálfunaráætlunar fyrir tólf doktorsnema. Áætlunin mun stuðla að þróun nýrrar hugsunar í hagfræði sem byggist á þekkingu á auðlindum jarðar. 

Verkefnið kallast aðlögun að nýjum efnahagslegum veruleika (AdaptEcon) og er skipt í þrjú þemu: (1) sjálfbæra stjórnun auðlinda; (2) samþætt efnahagslegt kerfismat og (3) samþættingu samfélags og hagfræði.  

Þjálfurnaráætlunin er á vegum Marie Curie verkáætlunar Evrópusambandsins og munu nemendur öðlast sameiginlega doktorsgráðu frá tveimur háskólum. Samstarfháskólar Háskóla Íslands í verkefninu eru Háskólinn í Stokkhólmi og Blaise Pascal háskólinn í Clermont Ferrand í Frakklandi.  Auk háskólanna taka New Economics Foundation í London, Schumacher-stofnunin í Bristol, Försvarshögskolan í Stokkhólmi, Wuppertal-stofnunin í Berlín og Gesellschaft für Wirtschaftliche Strukturforschung í Osnabrück þátt í verkefninu.

Samstarfsaðilar Kristínar Völu við Háskóla Íslands eru Harald Sverdrup, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, válaverkfræði- og tölvunarfræðideild, og Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði.  Verkefnið hefst 1. desember 2015.

Nánari upplýsingar um verkefnið

Kristín Vala Ragnarsdóttir