Skip to main content
26. júní 2017

Fimmtíu þúsund læra íslensku á netinu

Hinn 23. júní síðastliðinn var opnað nýtt námskeið í íslensku sem öðru máli fyrir snjalltæki. Icelandic Online eru sex vefnámskeið í íslensku. Fyrsta þeirra var opnað til notkunar 2004 og það sjötta 2013. Námskeiðin eru sjálfstýrð og öllum opin til notkunar á Netinu. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, opnaði nýja námskeiðið við hátíðlega athöfn í Veröld – húsi Vigdísar, þar sem Icelandic Online hefur fengið aðsetur. 

Nú eru 170 þúsund skráðir notendur að námskeiðunum bæði hér á landi og víða annars staðar í heiminum, þar af eru 50 þúsund þeirra virkir notendur í dag. Auk þess að vera notuð í sjálfstýrðu námi eru námskeiðin notuð í skipulögðu námi við Háskóla Íslands og erlenda háskóla þar sem nútímaíslenska er kennd.

Icelandic Online er samstarfsverkefni Hugvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. 

Fyrir um fjórum árum kom forsetaskrifstofan þeirri ósk á framfæri við Kristínu Ingólfsdóttur, þáverandi rektor Háskóla Íslands ,að námskeiðin yrðu einnig nothæf á snjalltækjum. Það varð fljótt ljóst að til þess að þetta yrði hægt þyrfti að endurforrita námskeiðin. Rektorsskrifstofa lagði fram byrjunarfjárframlag til að sú vinna gæti farið af stað í samvinnu milli verkefnisstjórnar Icelandic Online og tölvunarfræðideildar Háskólans. Endurforritunin hófst fyrir þremur árum og hafa nemar í tölvunarfræði smíðað nýtt forrit fyrir námskeiðin undir leiðsögn Patrick Thomas máltölvunarfræðings sem hefur verið verkefnisstjórninni til ráðgjafar allt frá því að fyrsta Icelandic Online námskeiðið var unnið. Hinn 13. september sl. var fyrsta endurforritaða námskeiðið opnað til almennrar notkunar á Netinu. Þetta námskeið kallast Bjargir (e. survival course) og er ætlað innflytjendum sem eru algjörir byrjendur í íslensku. Nú 23. júní nk. var opnað annað endurforritað námskeið, Icelandic Online 1: menning. Vinna við að endurforrita önnur námskeið er hafin. 

Fyrir þremur árum hófst einnig samvinna við Fróðskaparsetrið í Færeyjum um að gera námskeið á Netinu í færeysku. Fyrsta netnámskeiðið í færeysku var opnað 13. september sl. Auk þess hefur hafist samstarf við Helsinkiháskóla um að vinna námskeið í Finnlandssænsku fyrir Netið. Fyrsta netnámskeiðið í Finnlandssænsku verður opnað innan skamms.

Auk rektorsskrifstofunnar og þeirra stofnana sem standa að IOL hafa Vinnumálastofnun og Nordplus Voksen og Nordplus Sprog áætlanirnar stutt endurforritun IOL og samstarf verkefnisstjórnarinnar við Fróðskaparsetrið og Helsinkiháskóla.
 

Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor í annarsmálsfræðum, kynnti nýja námskeiðið fyrir gestum.
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, opnaði nýja námskeiðið sem ber nafnið Icelandic Online 1: menning.
Gestir við opnun námskeiðsins
Gesti við opnun námskeiðsins