Skip to main content
27. febrúar 2024

Ársfundur Stofnunar rannsóknasetra HÍ

Ársfundur Stofnunar rannsóknasetra HÍ - á vefsíðu Háskóla Íslands

Ársfundur Stofnunar rannsóknsetra HÍ verður haldinn í Eddu fimmtudaginn 14. mars nk. kl. 13 til 16.15. Öll velkomin.

Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi.

Dagskrá

  • 13.00 – 13.05 Guðmundur Hálfdánarson, prófessor og formaður ráðgefandi nefndar Stofnunar rannsóknasetra HÍ, býður gesti velkomna.
  • 13.05 – 13.15 Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.
    Opnunarávarp.
  • 13.15-13.30 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar.
    Ávarp ráðherra.
  • 13.30 – 13.50 Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Suðurnesjum.
    Lífríki í kröppum sjó: mengunarrannsóknir og vöktun.
  • 13.50 – 14.10 Auður Aðalsteinsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ í Þingeyjarsveit.
    Fagurfræði vistkerfanna.
    14.10 – 14. 30 Vilhelm Vilhelmsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Norðurlandi vestra.
    Sáttamiðlun á 19. og 20. öld - Sögulegt fordæmi fyrir samtímann?
  • 14.30 – 14. 45 Anna Selbmann, doktorsnemi við Rannsóknasetur HÍ í Vestmannaeyjum.
    Já, já, já og jæja: Icelandic killer whales repeat and combine calls.
  • 14.45– 15:05 Kaffihlé.
  • 15.05 – 15.25 Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum.
    Öflugir háskólar, öflugar byggðir. Nýsköpun í atvinnulífi og rannsóknum á landsbyggðinni.
  • 15.25 – 15.45 Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Vestfjörðum, Tómas G. Gunnarsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Suðurlandi, og Þorvarður Árnason, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Hornafirði.
    Sóknarfæri í samstarfi.
  • 15.45 – 16.15 Pallborðsumræður með þátttöku Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands, Hólmfríðar Sveinsdóttur, rektors Háskólans á Hólum, og Sæunnar Stefánsdóttur, forstöðumanns Stofnunar rannsóknasetra HÍ.

Fundarstjóri er Guðmundur Hálfdánarson, prófessor og formaður ráðgefandi nefndar Stofnunar rannsóknasetra HÍ.

Ársfundinum verður einnig streymt en slóð á streymi verður á finna á Facebook síðu Stofnunarinnar þegar nær dregur fundi.

Slóð á streymi

Ársfundur Stofnunar rannsóknasetra HÍ