Skip to main content
22. janúar 2015

Á krossgötum: Kynning á störfum hjúkrunarfræðinga

""

Fjórða árs nemar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands bjóða til kynningar á ýmsum starfssviðum hjúkrunarfræðinga föstudaginn 23. janúar kl. 11.00-15.00 í Eirbergi.

Nýjar og hefðbundnar hliðar á starfsvettvangi hjúkrunarfræðinga verða kynntar, til dæmis: Endurhæfingarhjúkrun, hjúkrun og hjálparstarf, hjúkrun á Vökudeild, Frú Ragnheiður, skaðaminnkunnarverkefni Rauða krossins, hjúkrun í heilsugæslu, hundar í hjúkrunarmeðferð, hjúkrun á göngudeild hjartabilaðra og bráðahjúkrun – bráðamat;  Lífsstílsmóttaka.

Framhaldsnám við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands verður einnig kynnt og fulltrúar heilbrigðisstofnana og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segja frá starfsemi sinni. Glæsileg kaffisala nemenda verður frá kl.11.30-13.00 til styrktar útskriftarferð þeirra í vor.

Hér má sjá myndir frá viðburðinum í fyrra.

""
Hjúkrunarfræðingar vinna margslungin verk víða í samfélaginu. Starfsvettvangur þeirra er í senn fjölbreyttur og spennandi.