Þú berð ábyrgð á þínu námi og skráir þig úr námskeiðum í Uglu (Uglan mín → Námskeiðin mín. Aftan við hvert námskeið er tákn fyrir úrsögn sem þú smellir á.)
Skráning úr námskeiði er jafnframt skráning úr prófi (Uglan mín → Námskeiðin mín. Þar aftan við hvert námskeið er tákn fyrir úrsögn sem hægt er að smella á. Athugaðu að staðfesta þarf valið svo úrsögn taki gildi).
Í mars á hverju ári fer fram skráning í áframhaldandi nám í Uglu þar sem nemendur velja sér námskeið fyrir bæði haust- og vormisseri næsta háskólaárs.
Þú sækir um nám við Háskóla Íslands með því að fylla út umsókn í Umsóknagátt skólans.
Á Þjónustumiðju Háskóla Íslands er að finna leiðbeiningar um hvernig á að tengja tölvurnar. Tölvuþjónusta Upplýsingatæknisviðs getur aðstoðað nemendur við nettengingar.
Námið er eins árs hagnýtt diplómanám í íslensku sem öðru máli. Það er ætlað nemendum sem hafa litla undirstöðu í íslensku og vilja öðlast færni til að nota málið í daglegu lífi.
Nemendur við Háskóla Íslands greiða árlegt skrásetningargjald en ekki skólagjöld.
Hjá Háskóla Íslands er starfandi Ritver sem er með tvær starfsstöðvar, í bókasafni Menntavísindasviðs við Stakkahlíð og á 2. hæð í Þjóðarbókhlöðu (Landsbókasafni).
Ef rétt er staðið að notkun gervigreindar getur hún verið öflugt verkfæri til að einfalda verkefni og flýta fyrir vinnu. Háskóli Íslands leggur áherslu á að nemendur og kennarar hafi eftirfarandi grundvallarreglur að leiðarljósi:
Já þú mátt taka próf aftur sem þú hefur staðist ef þú vilt hækka einkunn þína. Þetta er hægt bæði með því að skrá sig í endurtökupróf og greiða fyrir það 6.000 kr eða skrá sig aftur í námskeiðið.