Já þú mátt taka próf aftur sem þú hefur staðist ef þú vilt hækka einkunn þína. Þetta er hægt bæði með því að skrá sig í endurtökupróf og greiða fyrir það 6.000 kr eða skrá sig aftur í námskeiðið.
Háskóli Íslands leggur áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika á öllum sviðum og hefur það að markmiði að vera í fararbroddi í jafnréttismálum.
Óskilamuni sem finnast í kennslustofum og almennum rýmum bygginga við Sæmundargötu má nálgast á Þjónustuborðinu Háskólatorgi. Annars staðar er hægt að nálgast óskilamuni á þjónustuborðum bygginga eða hjá umsjónarmönnum bygginga.
Háskóli Íslands hefur tekið fyrsta skrefið til að bæta umferð og umhverfi á háskólasvæðinu með því að innleiða gjaldtöku fyrir bílastæði.
Hvort sem þú ætlar þér að vera viðstödd/viðstaddur athöfn eða ekki þarftu alltaf að skrá þig í brautskráningu. Þetta getur þú gert í Uglu um leið og þú velur námskeið.
Skráning í námskeið er jafnframt skráning í próf. Þú þarft eingöngu að skrá þig sérstaklega í sjúkrapróf og endurtökupróf og það gerir þú í Uglu.