Já þú mátt taka próf aftur sem þú hefur staðist ef þú vilt hækka einkunn þína. Þetta er hægt bæði með því að skrá sig í endurtökupróf og greiða fyrir það 6.000 kr eða skrá sig aftur í námskeiðið.
Athugaðu að ef þú ferð aftur í próf sem þú hefur staðist þá gildir seinni einkunnin. Þannig að ef þú lækkar í einkunn eða fellur á seinna prófinu þá gildir sú einkunn.