Skráning í námskeið er jafnframt skráning í próf. Þú þarft eingöngu að skrá þig sérstaklega í sjúkrapróf og endurtökupróf og það gerir þú í Uglu. Ef slík próf eru utan auglýsts próftíma þarf í sumum tilvikum að hafa samband við Nemendaskrá til að fá aðstoð við skráningu í sjúkra- og endurtökupróf.