Hvort sem þú ætlar þér að vera viðstödd/viðstaddur athöfn eða ekki þarftu alltaf að skrá þig í brautskráningu. Þetta getur þú gert í Uglu um leið og þú velur námskeið.

Þegar nær dregur brautskráningu verður þú að staðfesta hjá deildinni þinni að þú ætlir að brautskrást. Í flestum tilvikum er þetta gert á vef deildarinnar.

Ef þú ert ekki skráð/-ur í brautskráningu og/eða hefur ekki staðfest við deildina þína í lok misseris að þú ætlir að brautskrást er litið svo á að þú ætlir ekki að brautskrást.

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil