Háskóli Íslands tekur fyrsta skrefið til að bæta umferð og umhverfi á háskólasvæðinu með því að innleiða gjaldtöku fyrir bílastæði.
Bílastæðum verður skipt í tvo flokka:
- H1: Skammtímastæði. Þau verða merkt sérstaklega og eru næst helstu byggingum. Stæðin eru gjaldskyld fyrir alla samkvæmt gjaldskrá.
- H2: Langtímastæði. Starfsfólk og nemendur Háskóla Íslands geta gerst áskrifendur og nýtt þessi stæði sem langtímastæði með mánaðaráskrift. Aðrir greiða tímagjald samkvæmt gjaldskrá.