Bíll
Bílastæði og gjaldtaka

Háskóli Íslands tekur fyrsta skrefið til að bæta umferð og umhverfi á háskólasvæðinu með því að innleiða gjaldtöku fyrir bílastæði.

Bílastæðum verður skipt í tvo flokka:

  • H1: Skammtímastæði. Þau verða merkt sérstaklega og eru næst helstu byggingum. Stæðin eru gjaldskyld fyrir alla samkvæmt gjaldskrá.
  • H2: Langtímastæði. Starfsfólk og nemendur Háskóla Íslands geta gerst áskrifendur og nýtt þessi stæði sem langtímastæði með mánaðaráskrift. Aðrir greiða tímagjald samkvæmt gjaldskrá.
  • Til að skrá sig í áskrift þarf að ná í Parka appið.
    1. Hver einstaklingur getur skráð fleiri en eitt bílnúmer í áskrift. Ný númer eru skráð í Parka-appinu og í áskriftarhlutanum velur þú hvaða bíll á að vera virkur hverju sinni.
    2. Bílastæði eru gjaldfrjáls fyrstu 15 mínúturnar, en að þeim tíma liðnum greiðist fullt gjald.
  • Handhöfum stæðiskorts fyrir hreyfihamlaða verður heimilt að leggja ökutæki í gjaldskyld stæði án sérstakrar greiðslu skv. gildandi umferðalögum. Til að skrá ökutæki sitt þarf að senda tölvupóst á bilastaedi (hjá) hi.is og láta fylgja með skýra ljósmynd af P-kortinu.
  • Háskóli Íslands hefur gert samning við Strætó um sérkjör á tímabilskortum fyrir starfsfólk. Nánari upplýsingar um samgöngusamning (krefst innskráningar í Uglu)

Allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag gjaldskyldu og áskrift eru á hi.parka.is og á Þjónustumiðju HÍ.

Kort af bílastæðum

Á kortinu sjást gjaldskyld bílastæði á háskólasvæðinu.

  • Rauðu stæðin eru skammtímastæði (H1).
  • Gulu stæðin eru langtímastæði (H2).
Kort af bílastæðum Háskólans og gjaldsvæðum
Tengt efni
Bike in the sunset
""
Plants in Gróska

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil