Ef rétt er staðið að notkun gervigreindar getur hún verið öflugt verkfæri til að einfalda verkefni og flýta fyrir vinnu. Háskóli Íslands leggur áherslu á að nemendur og kennarar hafi eftirfarandi grundvallarreglur að leiðarljósi:

  • Notkun gervigreindar í námi og kennslu skal vera í samræmi við reglur og viðmið Háskóla Íslands, bæði hvað varðar tæknileg og siðferðileg atriði.
  • Um notkun gervigreindar í námi og kennslu gilda sömu reglur og um aðrar heimildir og hjálpargögn. Vísa skal til heimilda í samræmi við viðurkenndar reglur Háskóla Íslands.
  • Misnotkun gervigreindar í námi og kennslu lýtur sömu reglum og önnur brot gegn akademískum heilindum.

Nánari upplýsingar um gervigreind við Háskóla Íslands.

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil