Þú berð ábyrgð á þínu námi og skráir þig úr námskeiðum í Uglu (Uglan mín → Námskeiðin mín. Aftan við hvert námskeið er tákn fyrir úrsögn sem þú smellir á.)
- Athugaðu að staðfesta þarf valið svo úrsögn taki gildi.
Þú þarft að skrá þig úr námskeiði í síðasta lagi 15. september vegna prófa á haustmisseri og 1. febrúar vegna prófa á vormisseri.
Athugaðu að breytingar á námskeiðaskráningu koma ekki fram í stundatöflu fyrr en eftir þrjá klukkutíma.
Ef vandamál koma upp við úrsögn úr námskeiðum getur þú leitað til Nemendaskrár.
- Skráir þú þig ekki úr námskeiði, sem þú ætlar ekki að taka, jafngildir það falli í námskeiðinu.