Námið er eins árs hagnýtt diplómanám í íslensku sem öðru máli. Það er ætlað nemendum sem hafa litla undirstöðu í íslensku og vilja öðlast færni til að nota málið í daglegu lífi. Við upphaf náms þurfa nemendur að hafa náð A1-stigi samkvæmt sameiginlegum evrópskum tungumálaramma (CEFR).
Til undirbúnings má til dæmis nýta:
- Íslenska fyrir alla 1 and Íslenska fyrir alla 2
- Icelandic Online, Survival Course and Icelandic Online 1
Nánari upplýsingar um inntökuprófið má finna á síðu námsleiðarinnar Íslenska sem annað mál – hagnýtt nám, diplómapróf.