""
Tungumál kennslu
Íslenska (enska að hluta til í upphafi náms).
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið Fjarnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Foreign residents of Iceland with Icelandic ID number, and Icelandic and Nordic citizens:
Yfirlit

  • Vilt þú læra að tala og lesa einfalda íslensku?
  • Langar þig að geta bjargað þér á íslensku í daglegu lífi?
  • Vilt þú auka möguleika þína á virkri þátttöku í íslensku samfélagi?
  • Vilt þú öðlast færni til að taka áframhaldandi háskólanám í íslensku sem öðru máli?

Í Hagnýtri íslensku er byggð upp hagnýt grunnþekking á íslensku máli: málkerfi, orðaforða, skilningi og tjáningu. Nemendur geta einnig valið sér námskeið um íslenska menningu sem hluta af náminu. Megináhersla er lögð á tjáskipti og hagnýta málnotkun þannig að nemendur öðlist grundvallarfærni í skilningi og tjáningu á íslensku máli. Allir færniþættir eru þjálfaðir: munnleg færni, samskipti, ritunarfærni, hlustunar- og lesskilningur. Markmiðið er að nemendur geti tjáð sig við allar almennar aðstæður daglegs lífs, skilið umræðu er lýtur að hversdagslífi og lesið og skilið einfalda texta. Einnig er ætlast til að nemendur tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð og námsaðferðir til að geta haldið íslenskunámi sínu áfram.

Nám í Hagnýtri íslensku sem öðru máli eykur möguleika fólks af erlendum uppruna á virkri þátttöku í íslensku samfélagi og atvinnulífi. Nám í Hagnýtri íslensku sem öðru máli veitir nemendum einnig grunn til að takast á við frekara nám í íslensku sem öðru máli.

Aðgangur að frekara námi

Fyrsta einkunn (7,25) veitir aðgang að BA-námi í íslensku sem öðru máli og Íslenskustoð

Kröfur um færni í íslensku

Námið er sniðið að nemendum með lítinn grunn í íslensku. Nemendur skulu hafa náð A1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum áður en námið hefst. Sjá til dæmis:

Umsóknarfrestur

  • 1. febrúar fyrir alþjóðlega umsækjendur.
  • 20. maí fyrir umsækjendur sem eru búsettir á Íslandi og hafa íslenska kennitölu.

Nauðsynlegt er að sækja um í gegnum Umsóknagátt HÍ. Umsóknir sem berast í gegnum tölvupóst verða ekki teknar til greina.

Kennsla

Nemendur í fullu námi sækja staðkennslu tvo morgna eða tvö síðdegi í viku á mánudögum/þriðjudögum og miðvikudögum/fimmtudögum. Einnig verður í boði staðkennsla fjögur síðdegi í viku, frá 16:40 til 18:10, ef næg þátttaka næst. Fjarnám verður einnig í boði og sækja nemendur tíma fjóra morgna í viku, frá 8:20 til 9:50, eða fjögur síðdegi í viku, frá 16:40 til 18:10, mánudaga til fimmtudaga, ef næg þátttaka næst. Nemendur velja sér hóp í ágúst, áður en kennsla hefst. Framboð tíma í stundatöflu ræðst af þátttöku og getur breyst milli haustmisseris og vormisseris. Vakin er athygli á að fjarnámið er aðeins í boði fyrir nemendur með búsetu á Íslandi.

Öllum nemendum hagnýta diplómanámsins, fjarnemum þar með töldum, ber að taka miðmisseris- og lokapróf á staðnum við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Háskólasetur Vestfjarða eða aðra viðurkennda prófstaði.

Við upphaf skólaárs

Kennsla hefst i lok ágúst. Skráðir nemendur geta skoðað handbók hagnýta námsins eftir að þeir hafa fengið nemendaaðgang.

Athugið: Síðasti dagur til að hefja nám er 3. september 2026.

Erlent ígildi íslensks stúdentsprófs eða sambærilegt próf. Nánari upplýsingar er að finna í 17. grein reglna um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022. Frekari upplýsingar eftir landi má finna hér. Auk þess þurfa erlendir nemendur sem ekki hafa ensku að móðurmáli að sýna fram á enskukunnáttu með TOEFL (79 eða jafngildi eftir 21. janúar 2026), IELTS (6.5). eða PTE Academic (58). Prófið má ekki vera meira en tveggja ára gamalt. Fleiri leiðir til að sýna fram á enskukunnáttu er að finna hér.  

Nemendur skulu hafa náð A1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum áður en námið hefst. Nemendur þreyta sérstakt inntökupróf til að sýna fram á færni sem samsvarar A1. Nánari upplýsingar um inntökupróf má finna hér.

Allir umsækjendur, sem uppfylla fyrrgreind inntökuskilyrði, skulu þreyta skriflegt inntökupróf sem reynir á færni á A1-stigi. Umsækjendur búsettir á Íslandi þreyta skriflegt inntökupróf sem staðpróf á Íslandi en umsækjendur búsettir erlendis þreyta prófið sem fjarpróf á netinu. Þeir sem ná skriflega fjarprófinu (lágmarkseinkunn 6,0 af 10) skulu jafnframt þreyta munnlegt próf í gegnum fjarfundabúnað sem reynir á A1-færni og er ætlað að auðkenna próftaka. Lágmarkseinkunn í munnlega prófinu er 6,0 af 10.

ATH. Þann 4. desember 2025 samþykkti háskólaráð að háskólaárið 2026-2027 myndi fjöldi nemenda í Íslensku sem annað mál – hagnýtt nám, diplómapróf takmarkast við 50 fyrir umsækjendur með ríkisfang frá ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Undanþegnir takmörkuninni eru ríkisborgarar Sviss, Grænlands og Færeyja, auk þeirra sem hafa ótímabundið dvalarleyfi eða dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur að ótímabundnu dvalarleyfi hér á landi.

Nái fleiri en 50 umsækjendur, sem takmörkunin nær til, lágmarkseinkunn á munnlega prófinu skulu þeir 50 sem hæsta einkunn hlutu á munnlega prófinu teknir inn í námið.]

Til að brautskrást með diplómu í hagnýtri íslensku þurfa allir nemendur að ljúka eftirtöldum sex námskeiðum: Orðaforði og málfræði I, Tal og tjáning I og Hljóð og hlustun I á haustmisseri; Orðaforði og málfræði II, Tal og tjáning II, Hljóð og hlustun II á vormisseri. Athugið að aðeins er hægt að taka Orðaforða og málfræði II, Tal og tjáningu II, Hljóð og hlustun II hafi nemandi lokið Orðaforði og málfræði I, Tal og tjáning I og Hljóð og hlustun I.

Til viðbótar þurfa nemendur að ljúka samtals 20 ECTS-einingum í bundnum valnámskeiðum til að brautskrást. Mælt er með að nemendur velji Sjálfsnám I og Sjálfsnám II ef þeir vilja öðlast sem besta færni í íslensku, sérstaklega þeir sem eru styttra komnir í íslenskunámi. Skráning í valnámskeiðið Sjálfsnám í íslensku II er ekki háð því að hafa lokið Sjálfsnám í íslensku I.

Nemendur geta einnig valið ýmis menningarnámskeið á ensku. Vinsamlegast athugið að nemendur mega aðeins velja eitt af eftirtöldum námskeiðum: ÍSE014G Íslensk menning eða MEX020G Icelandic Nature and Cultural Legacy. Ef nemandi tekur bæði námskeiðin mun aðeins annað þeirra teljast hluti af 20 ECTS-eininga bundnu vali.  Til þess að brautskrást frá Íslensku- og menningardeild þarf stúdent að ná meðaleinkunninni 6,0, sbr. 114. gr. í Reglum fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

 

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Inngangur að sögu Íslands (SAG036G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta yfirlitsnámskeið er ætlað til að kynna nemendur fyrir sögu Íslands frá landnámi á níundu öld til nútímans og veita yfirlit yfir atburði og þróun á þessu langa tímabili. Pólitískar, félagslegar, efnahagslegar og menningarlegar hliðar munu fjalla um lykilþemu. Þar með talið eru landnám Íslands í samhengi við víkingaútþenslu; heiðni og uppgang kristni; siðbreytingin og styrking danska konungsríkisins; umhverfi og fólksfjölgunarkreppur fyrir iðnvæðingu; áhrif upplýsingarinnar; upprisa þjóðernishyggju og myndun þjóðríkis; breytingin frá bændasamfélagi til iðnsamfélags; áhrif kalda stríðsins; 'þorskastríðin'; kvennahreyfingin; hnattvæðing og fjármálakreppan 2008.

Markmið námskeiðsins er að búa nemendur almennri þekkingu á sögu Íslands auk þess að kynna þeim fyrir sumum af miðlægum umræðuefnum sem endurspegla lykilspurningar rannsókna, aðferðafræði og túlkunar.

Námskeiðið er ekki ætlað fyrir íslenska nemendur.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Being Icelandic: Icelandic Folktales, Beliefs and Popular Culture Past and Present (ÞJÓ004G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

(Kennt á ensku; aðeins fyrir erlenda nemendur.) The aim of this course is to introduce foreign students to Icelandic folk culture past and present: from the folk beliefs implied by the Icelandic sagas to the famous collection of folk tales concerning "hidden people", elves, magicians, seal-folk, ghosts and more which was published by Jón Árnason in 1862-64; the ballads and music enjoyed by the people in the countryside; and the beliefs, behaviour and lifestyles encountered by the somewhat dumbfounded and awe-inspired early foreign travellers to Iceland during the last century. Students will also be introduced to modern Icelandic traditions and beliefs, from the Christmas men to the "elf stones" that road builders avoid, to the eating of sheeps heads, and the continual interest in the supernatural. The course is not intended for Icelandic students.

Vinnulag
Kennsla fer fram í fyrirlestrum, og umræðum um fyrirlestra.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Icelandic Nature and Cultural Legacy (MEX020G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Náttúra Íslands
Nemendur kynnast veðri og loftslagi, jarðfræði, gróðurfari og dýralífi (villtum dýrum og húsdýrum). Fluttir verða fyrirlestrar um jarðfræði Íslands og farið í vettvangsferðir að skoða eldfjöll, hveri og hraun auk þess sem nemendur kynnast landafræði Íslands. Farið verður í fuglaskoðunarferðir, fjöruferðir og skóglendi kannað. Umhverfismál og náttúruvernd eru einnig meðal umfjöllunarefna þessa hluta námskeiðsins.

Menningararfur
Í menningarhluta námskeiðsins verður gefið yfirlit yfir íslenska menningu og menningarsögu frá miðöldum til samtímans.

Ein Íslendingasaga verður lesin. Þjóðsögur og munnleg hefð þeirra verður kynnt auk nútímabókmennta, bókmennta samtímans og annarra listgreina. Í þessum hluta námskeiðsins verður farið í styttri ferðir á söfn og listasöfn.

Vettvangsferðir (1-6 klst) eru nauðsynlegur hluti námskeiðsins.

Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, umræður, hópverkefni og vettvangsferðir.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Sjálfsnám í íslensku I (ÍSE001G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er nemendastýrt sjálfsnám með stuðningi kennara. Nemendur velja sér færniþátt sem þeir vilja þjálfa sérstaklega. Í boði eru fjórir hópar: hlustun, lestur, ritun og samskiptafærni (talþjálfun). Athugið að nemendur sem eru skráðir í námsleiðina Íslenska sem annað mál, hagnýtt nám, hafa forgang í ritunarhóp og samskiptafærnihóp.

Innan hvers hóps verður áhersla lögð á að öðlast færni í einfaldri og hagnýtri íslensku fyrir dagsdaglegar athafnir. Námskeiðið tekur mið af stigum A1–A2 samkvæmt CEFR (Common European Framework of Reference for Languages).

Auk þess að þjálfa valin færniþátt fá allir nemendur þjálfun í því að stunda sjálfsnám. Auk þess fá nemendur þjálfun og fræðslu sem stuðlar að því að nemendur tileinki sér sjálfstæði og frumkvæði í námi.

Ritunar-, lestrar- og hlustunarhópar hittast sex sinnum yfir misserið á Zoom eða Teams. Talþjálfunarhópurinn hittist vikulega í stofu.

Námsmat byggist á verkefnum, hlutaprófum og lokaprófi.

Gert er ráð fyrir að skráðir nemendur búi yfir A1 færni í íslensku. Áhugasamir nemendur geta metið stöðu sína með því að skoða A1 sýnispróf á ytri vef háskólans: A1 sýnispróf

Nemendum sem ekki hafa náð A1 færni er bent á námskeiðin ÍSE025G Íslenskugrunnur 1 og ÍSE051G Íslenskugrunnur 2.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Fyrsta ár | Haust
Íslensk menning (ÍSE014G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er gefið yfirlit yfir íslenska menningu og sögu en höfuðáhersla er lögð á hin hröðu umskipti sem orðið hafa í átt til nútímalifnaðarhátta hér á landi á síðari áratugum. Fjallað er um bókmenntir, tónlist, myndlist, kvikmyndir, og eru meðal annars lesin valin skáldverk eftir íslenska samtímahöfunda. Námskeiðið er opið öllum erlendum stúdentum við Háskóla Íslands og fer kennslan fram á ensku.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Haust
Orðaforði og málfræði I (ÍSE002G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Megináhersla verður lögð á uppbyggingu orðaforða og færniþættina tvo: tal og ritun. Farið verður í ýmis málnotkunar- og málfræðiatriði, s.s. kyn, aukafallssagnir, merkingu nokkurra sagnasambanda og beygingu nokkurra sagna. Í námskeiðinu verður byggður upp daglegur orðaforði íslensku. Orðaforðinn verður æfður munnlega og skriflega með verkefnum í kennslustundum og heimavinnu. Málfræðiatriði verða tekin fyrir í samhengi við orðaforðann og umræðuefnin.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Tal og tjáning I (ÍSE030G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað byrjendum í íslensku. Í námskeiðinu eru nemendur þjálfaðir í samskiptum á íslensku og skilningi á mæltu máli s.s. að hefja samtal og ljúka því, kynna sig, biðja um þjónustu eða aðstoð. Kynntir verða einfaldir frasar sem þarf til að bjarga sér í daglegu lífi. Nemendur vinna verkefni í svokölluðu Íslenskuþorpi og úti í samfélaginu um leið og þeir sinna daglegum erindum sínum. Nemendur vinna ýmist einir eða í litlum hópum með samtöl og stuttar framsögur í kennslustundum og úti í samfélaginu.  

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Hljóð og hlustun I (ÍSE032G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið er í grundvallaratriði íslensk hljóðkerfis. Framburður sérhljóða og samhljóða er markvisst æfður, sem og framburður algengra samhljóðaklasa. Þá eru kynntar helstu reglur um framburð í samfelldu tali sem og reglur um áherslu og tónfall. Nemendur vinna að ýmsum hlustunar-, skilnings og framburðarverkefnum, innan og utan kennslustofu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Icelandic Nature and Cultural Legacy (MEX020G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Náttúra Íslands
Nemendur kynnast veðri og loftslagi, jarðfræði, gróðurfari og dýralífi (villtum dýrum og húsdýrum). Fluttir verða fyrirlestrar um jarðfræði Íslands og farið í vettvangsferðir að skoða eldfjöll, hveri og hraun auk þess sem nemendur kynnast landafræði Íslands. Farið verður í fuglaskoðunarferðir, fjöruferðir og skóglendi kannað. Umhverfismál og náttúruvernd eru einnig meðal umfjöllunarefna þessa hluta námskeiðsins.

Menningararfur
Í menningarhluta námskeiðsins verður gefið yfirlit yfir íslenska menningu og menningarsögu frá miðöldum til samtímans.

Ein Íslendingasaga verður lesin. Þjóðsögur og munnleg hefð þeirra verður kynnt auk nútímabókmennta, bókmennta samtímans og annarra listgreina. Í þessum hluta námskeiðsins verður farið í styttri ferðir á söfn og listasöfn.

Vettvangsferðir (1-6 klst) eru nauðsynlegur hluti námskeiðsins.

Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, umræður, hópverkefni og vettvangsferðir.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Norræn trú (ÞJÓ437G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Trúarlíf manna á norðurslóðum er tekið fyrir og heimildir allt frá elstu tímum, eins og grafir, rúnasteinar, hellaristur og aðrar fornminjar verða skoðaðar. Einnig verða lesnar lýsingar á norrænum trúarathöfnum í verkum eftir Tacitus, Adam frá Brimum, Saxo Grammaticus og í fornritum Íslendinga eins og Eddukvæðum og Konungasögum. Auk norrænnar trúar verður fjallað um seið og sjamanisma. Örlagatrú er tekin til ítarlegrar umfjöllunar sem meginþáttur í forkristnum átrúnaði á Norðurlöndum. Loks er vikið að því hvernig kristindómur hefur fallið að norrænum lífsháttum og hugsunarhætti. Námskeiðið er kennt á ensku.

Vinnulag:
Kennsla fer fram í fyrirlestrum, og umræðum um fyrirlestra.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Fyrsta ár | Vor
Sjálfsnám í íslensku II (ÍSE009G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er beint framhald af námskeiðinu ÍSE001G Sjálfsnámi í íslensku I. Í því verður unnið frekar með málfræði, hlustun og hlustunarskilning auk lesturs og orðaforða. Námskeiðið er nemendastýrt undir umsjón kennara og stjórna nemendur efnisvali og markmiðum að hluta í samráði við hann. Nemendur styðjast við gagnvirka netkennsluefnið Icelandic Online 2 plús og velja sér að auki efni með tilliti til ákveðins færniþáttar sem þeir vilja leggja frekari rækt við, þ.e. málfræði, hlustun eða lestur/orðaforða. Nemendur sækja kennslustundir þar sem þeir fá tækifæri til að spyrja spurninga og æfa það sem þeir hafa lært.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Fyrsta ár | Vor
Íslensk menning (ÍSE014G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er gefið yfirlit yfir íslenska menningu og sögu en höfuðáhersla er lögð á hin hröðu umskipti sem orðið hafa í átt til nútímalifnaðarhátta hér á landi á síðari áratugum. Fjallað er um bókmenntir, tónlist, myndlist, kvikmyndir, og eru meðal annars lesin valin skáldverk eftir íslenska samtímahöfunda. Námskeiðið er opið öllum erlendum stúdentum við Háskóla Íslands og fer kennslan fram á ensku.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Vor
Orðaforði og málfræði II (ÍSE007G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið er framhaldsnámskeið fyrir þá nemendur sem hafa lokið ÍSE002G, Orðaforði og málfræði I. Megináhersla verður lögð á áframhaldandi uppbyggingu orðaforða með lestri og ritun. Lesnir verða textar um efni sem varða daglegt líf og málnotkun, orðaforði og málfræði þjálfuð í tengslum við þá. Grunnatriði íslenskrar málfræði eru kynnt og þjálfuð áfram, s.s. sagnbeyging í nútíð og þátíð og kyn og beyging fallorða.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Tal og tjáning II (ÍSE031G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið er framhaldsnámskeið fyrir þá nemendur sem hafa lokið námskeiðinu ÍSE030G, Tal og tjáning I. Nemendur lesa stutta texta heima sem varða daglegt líf og ræða efni þeirra í litlum hópum í kennslustundum. Nemendur flytja einnig kynningar um valin efni fyrir framan bekkinn. Umræður fara fram í litlum hópum og innan hópsins í heild. Kennslustundir eru einnig notaðar til þess að undirbúa nemendur fyrir samskipti utan kennslustofunnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Hljóð og hlustun II (ÍSE033G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið er framhaldsnámskeið fyrir þá nemendur sem hafa lokið ÍSE032G, Hljóð og hlustun I. Tiltekin framburðaratriði eru skýrð og þjálfuð, einkum samhljóðaklasar og framburður sérhljóða á undan ákveðnum samhljóðum. Algeng brottföll og breytingar hljóða í samfelldu tali eru tekin fyrir. Nemendur vinna að ýmsum hlustunar-, skilnings- og framburðarverkefnum innan og utan kennslustofunnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár
  • Haust
  • SAG036G
    Inngangur að sögu Íslands
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta yfirlitsnámskeið er ætlað til að kynna nemendur fyrir sögu Íslands frá landnámi á níundu öld til nútímans og veita yfirlit yfir atburði og þróun á þessu langa tímabili. Pólitískar, félagslegar, efnahagslegar og menningarlegar hliðar munu fjalla um lykilþemu. Þar með talið eru landnám Íslands í samhengi við víkingaútþenslu; heiðni og uppgang kristni; siðbreytingin og styrking danska konungsríkisins; umhverfi og fólksfjölgunarkreppur fyrir iðnvæðingu; áhrif upplýsingarinnar; upprisa þjóðernishyggju og myndun þjóðríkis; breytingin frá bændasamfélagi til iðnsamfélags; áhrif kalda stríðsins; 'þorskastríðin'; kvennahreyfingin; hnattvæðing og fjármálakreppan 2008.

    Markmið námskeiðsins er að búa nemendur almennri þekkingu á sögu Íslands auk þess að kynna þeim fyrir sumum af miðlægum umræðuefnum sem endurspegla lykilspurningar rannsókna, aðferðafræði og túlkunar.

    Námskeiðið er ekki ætlað fyrir íslenska nemendur.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞJÓ004G
    Being Icelandic: Icelandic Folktales, Beliefs and Popular Culture Past and Present
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    (Kennt á ensku; aðeins fyrir erlenda nemendur.) The aim of this course is to introduce foreign students to Icelandic folk culture past and present: from the folk beliefs implied by the Icelandic sagas to the famous collection of folk tales concerning "hidden people", elves, magicians, seal-folk, ghosts and more which was published by Jón Árnason in 1862-64; the ballads and music enjoyed by the people in the countryside; and the beliefs, behaviour and lifestyles encountered by the somewhat dumbfounded and awe-inspired early foreign travellers to Iceland during the last century. Students will also be introduced to modern Icelandic traditions and beliefs, from the Christmas men to the "elf stones" that road builders avoid, to the eating of sheeps heads, and the continual interest in the supernatural. The course is not intended for Icelandic students.

    Vinnulag
    Kennsla fer fram í fyrirlestrum, og umræðum um fyrirlestra.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MEX020G
    Icelandic Nature and Cultural Legacy
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Náttúra Íslands
    Nemendur kynnast veðri og loftslagi, jarðfræði, gróðurfari og dýralífi (villtum dýrum og húsdýrum). Fluttir verða fyrirlestrar um jarðfræði Íslands og farið í vettvangsferðir að skoða eldfjöll, hveri og hraun auk þess sem nemendur kynnast landafræði Íslands. Farið verður í fuglaskoðunarferðir, fjöruferðir og skóglendi kannað. Umhverfismál og náttúruvernd eru einnig meðal umfjöllunarefna þessa hluta námskeiðsins.

    Menningararfur
    Í menningarhluta námskeiðsins verður gefið yfirlit yfir íslenska menningu og menningarsögu frá miðöldum til samtímans.

    Ein Íslendingasaga verður lesin. Þjóðsögur og munnleg hefð þeirra verður kynnt auk nútímabókmennta, bókmennta samtímans og annarra listgreina. Í þessum hluta námskeiðsins verður farið í styttri ferðir á söfn og listasöfn.

    Vettvangsferðir (1-6 klst) eru nauðsynlegur hluti námskeiðsins.

    Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, umræður, hópverkefni og vettvangsferðir.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSE001G
    Sjálfsnám í íslensku I
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er nemendastýrt sjálfsnám með stuðningi kennara. Nemendur velja sér færniþátt sem þeir vilja þjálfa sérstaklega. Í boði eru fjórir hópar: hlustun, lestur, ritun og samskiptafærni (talþjálfun). Athugið að nemendur sem eru skráðir í námsleiðina Íslenska sem annað mál, hagnýtt nám, hafa forgang í ritunarhóp og samskiptafærnihóp.

    Innan hvers hóps verður áhersla lögð á að öðlast færni í einfaldri og hagnýtri íslensku fyrir dagsdaglegar athafnir. Námskeiðið tekur mið af stigum A1–A2 samkvæmt CEFR (Common European Framework of Reference for Languages).

    Auk þess að þjálfa valin færniþátt fá allir nemendur þjálfun í því að stunda sjálfsnám. Auk þess fá nemendur þjálfun og fræðslu sem stuðlar að því að nemendur tileinki sér sjálfstæði og frumkvæði í námi.

    Ritunar-, lestrar- og hlustunarhópar hittast sex sinnum yfir misserið á Zoom eða Teams. Talþjálfunarhópurinn hittist vikulega í stofu.

    Námsmat byggist á verkefnum, hlutaprófum og lokaprófi.

    Gert er ráð fyrir að skráðir nemendur búi yfir A1 færni í íslensku. Áhugasamir nemendur geta metið stöðu sína með því að skoða A1 sýnispróf á ytri vef háskólans: A1 sýnispróf

    Nemendum sem ekki hafa náð A1 færni er bent á námskeiðin ÍSE025G Íslenskugrunnur 1 og ÍSE051G Íslenskugrunnur 2.

    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSE014G
    Íslensk menning
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er gefið yfirlit yfir íslenska menningu og sögu en höfuðáhersla er lögð á hin hröðu umskipti sem orðið hafa í átt til nútímalifnaðarhátta hér á landi á síðari áratugum. Fjallað er um bókmenntir, tónlist, myndlist, kvikmyndir, og eru meðal annars lesin valin skáldverk eftir íslenska samtímahöfunda. Námskeiðið er opið öllum erlendum stúdentum við Háskóla Íslands og fer kennslan fram á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSE002G
    Orðaforði og málfræði I
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Megináhersla verður lögð á uppbyggingu orðaforða og færniþættina tvo: tal og ritun. Farið verður í ýmis málnotkunar- og málfræðiatriði, s.s. kyn, aukafallssagnir, merkingu nokkurra sagnasambanda og beygingu nokkurra sagna. Í námskeiðinu verður byggður upp daglegur orðaforði íslensku. Orðaforðinn verður æfður munnlega og skriflega með verkefnum í kennslustundum og heimavinnu. Málfræðiatriði verða tekin fyrir í samhengi við orðaforðann og umræðuefnin.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSE030G
    Tal og tjáning I
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er ætlað byrjendum í íslensku. Í námskeiðinu eru nemendur þjálfaðir í samskiptum á íslensku og skilningi á mæltu máli s.s. að hefja samtal og ljúka því, kynna sig, biðja um þjónustu eða aðstoð. Kynntir verða einfaldir frasar sem þarf til að bjarga sér í daglegu lífi. Nemendur vinna verkefni í svokölluðu Íslenskuþorpi og úti í samfélaginu um leið og þeir sinna daglegum erindum sínum. Nemendur vinna ýmist einir eða í litlum hópum með samtöl og stuttar framsögur í kennslustundum og úti í samfélaginu.  

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSE032G
    Hljóð og hlustun I
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið er í grundvallaratriði íslensk hljóðkerfis. Framburður sérhljóða og samhljóða er markvisst æfður, sem og framburður algengra samhljóðaklasa. Þá eru kynntar helstu reglur um framburð í samfelldu tali sem og reglur um áherslu og tónfall. Nemendur vinna að ýmsum hlustunar-, skilnings og framburðarverkefnum, innan og utan kennslustofu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • MEX020G
    Icelandic Nature and Cultural Legacy
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Náttúra Íslands
    Nemendur kynnast veðri og loftslagi, jarðfræði, gróðurfari og dýralífi (villtum dýrum og húsdýrum). Fluttir verða fyrirlestrar um jarðfræði Íslands og farið í vettvangsferðir að skoða eldfjöll, hveri og hraun auk þess sem nemendur kynnast landafræði Íslands. Farið verður í fuglaskoðunarferðir, fjöruferðir og skóglendi kannað. Umhverfismál og náttúruvernd eru einnig meðal umfjöllunarefna þessa hluta námskeiðsins.

    Menningararfur
    Í menningarhluta námskeiðsins verður gefið yfirlit yfir íslenska menningu og menningarsögu frá miðöldum til samtímans.

    Ein Íslendingasaga verður lesin. Þjóðsögur og munnleg hefð þeirra verður kynnt auk nútímabókmennta, bókmennta samtímans og annarra listgreina. Í þessum hluta námskeiðsins verður farið í styttri ferðir á söfn og listasöfn.

    Vettvangsferðir (1-6 klst) eru nauðsynlegur hluti námskeiðsins.

    Kennsluaðferðir: Fyrirlestrar, umræður, hópverkefni og vettvangsferðir.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞJÓ437G
    Norræn trú
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Trúarlíf manna á norðurslóðum er tekið fyrir og heimildir allt frá elstu tímum, eins og grafir, rúnasteinar, hellaristur og aðrar fornminjar verða skoðaðar. Einnig verða lesnar lýsingar á norrænum trúarathöfnum í verkum eftir Tacitus, Adam frá Brimum, Saxo Grammaticus og í fornritum Íslendinga eins og Eddukvæðum og Konungasögum. Auk norrænnar trúar verður fjallað um seið og sjamanisma. Örlagatrú er tekin til ítarlegrar umfjöllunar sem meginþáttur í forkristnum átrúnaði á Norðurlöndum. Loks er vikið að því hvernig kristindómur hefur fallið að norrænum lífsháttum og hugsunarhætti. Námskeiðið er kennt á ensku.

    Vinnulag:
    Kennsla fer fram í fyrirlestrum, og umræðum um fyrirlestra.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSE009G
    Sjálfsnám í íslensku II
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er beint framhald af námskeiðinu ÍSE001G Sjálfsnámi í íslensku I. Í því verður unnið frekar með málfræði, hlustun og hlustunarskilning auk lesturs og orðaforða. Námskeiðið er nemendastýrt undir umsjón kennara og stjórna nemendur efnisvali og markmiðum að hluta í samráði við hann. Nemendur styðjast við gagnvirka netkennsluefnið Icelandic Online 2 plús og velja sér að auki efni með tilliti til ákveðins færniþáttar sem þeir vilja leggja frekari rækt við, þ.e. málfræði, hlustun eða lestur/orðaforða. Nemendur sækja kennslustundir þar sem þeir fá tækifæri til að spyrja spurninga og æfa það sem þeir hafa lært.

    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSE014G
    Íslensk menning
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er gefið yfirlit yfir íslenska menningu og sögu en höfuðáhersla er lögð á hin hröðu umskipti sem orðið hafa í átt til nútímalifnaðarhátta hér á landi á síðari áratugum. Fjallað er um bókmenntir, tónlist, myndlist, kvikmyndir, og eru meðal annars lesin valin skáldverk eftir íslenska samtímahöfunda. Námskeiðið er opið öllum erlendum stúdentum við Háskóla Íslands og fer kennslan fram á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSE007G
    Orðaforði og málfræði II
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið er framhaldsnámskeið fyrir þá nemendur sem hafa lokið ÍSE002G, Orðaforði og málfræði I. Megináhersla verður lögð á áframhaldandi uppbyggingu orðaforða með lestri og ritun. Lesnir verða textar um efni sem varða daglegt líf og málnotkun, orðaforði og málfræði þjálfuð í tengslum við þá. Grunnatriði íslenskrar málfræði eru kynnt og þjálfuð áfram, s.s. sagnbeyging í nútíð og þátíð og kyn og beyging fallorða.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSE031G
    Tal og tjáning II
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið er framhaldsnámskeið fyrir þá nemendur sem hafa lokið námskeiðinu ÍSE030G, Tal og tjáning I. Nemendur lesa stutta texta heima sem varða daglegt líf og ræða efni þeirra í litlum hópum í kennslustundum. Nemendur flytja einnig kynningar um valin efni fyrir framan bekkinn. Umræður fara fram í litlum hópum og innan hópsins í heild. Kennslustundir eru einnig notaðar til þess að undirbúa nemendur fyrir samskipti utan kennslustofunnar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSE033G
    Hljóð og hlustun II
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið er framhaldsnámskeið fyrir þá nemendur sem hafa lokið ÍSE032G, Hljóð og hlustun I. Tiltekin framburðaratriði eru skýrð og þjálfuð, einkum samhljóðaklasar og framburður sérhljóða á undan ákveðnum samhljóðum. Algeng brottföll og breytingar hljóða í samfelldu tali eru tekin fyrir. Nemendur vinna að ýmsum hlustunar-, skilnings- og framburðarverkefnum innan og utan kennslustofunnar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Með betri þekkingu á íslensku máli getur þú:

  • starfað á íslenskum vinnumarkaði
  • starfað í ferðaþjónustu
  • starfað við inn- og útflutning
  • haldið áfram í íslenskunámi

Listinn er ekki tæmandi

  • Huldumál er félag nemenda í íslensku sem öðru máli
  • Félagið stuðlar að virku félagslífi og gætir hagsmuna sinna félagsmanna

Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Hana Sterikova
Mér finnst námið bæði krefjandi og spennandi. Öll námskeiðin eru frá byrjun kennd á íslensku, sem getur verið erfitt fyrir fólk sem er nýlega komið til Íslands og hefur ekki sérstaklega mikla kunnáttu í íslensku. Maður þarf að undirbúa sig mjög vel og helst að læra á hverjum degi, ef maður vill ná árangri, en það margborgar sig fljótlega. Þemun í námskeiðunum eru mjög fjölbreytt þannig að námið verður skemmtilegra. Nemendur læra ekki bara málfræði, hljóðfræði og að tala nútímaíslensku í praktísku lífi, heldur er líka alltaf eitthvað nýtt um íslenska menningu og landafræði, bragfræði, sögu Íslands, fornsögur eða eddukvæði. Ég kann vel að meta þessa blöndu af verklegu og bóklegu námi.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil