Í mars á hverju ári fer fram skráning í áframhaldandi nám í Uglu þar sem nemendur velja sér námskeið fyrir bæði haust- og vormisseri næsta háskólaárs.

Það er mjög mikilvægt að sinna skráningunni þar sem hún jafngildir skráningu í skólann næsta ár.

Þú skráir þig með því að smella á borðann sem birtist í Uglu og velur um leið hvernig þú greiðir skrásetningargjaldið.

Mundu eftir að staðfesta valið með því að smella á „Vista“ neðst á síðunni. Með því að greiða skrásetningargjaldið staðfestir þú að þú ætlir að halda áfram námi.

Í upphafi hvors misseris, til 27. ágúst á haustmisseri og til 21. janúar á vormisseri, getur þú breytt námskeiðaskráningunni í Uglu.

Skráir þú þig ekki er litið svo á að þú sért hætt/-ur námi.

Ef þú hefur gleymt að skrá þig verður þú að hafa samband við Nemendaskrá.

Nánari upplýsingar um dagsetningu árlegrar skráningar eru í kennsluskrá.

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil