Þú hefur aðgang að þráðlausu neti Háskólans. Allt þráðlaust net HÍ fer í gegnum Eduroam.
Á Þjónustumiðju Háskóla Íslands er að finna leiðbeiningar um hvernig á að tengja tölvurnar. Tölvuþjónusta Upplýsingatæknisviðs getur aðstoðað nemendur við nettengingar.
Tölvuþjónustan er staðsett á 2. hæð í Háskólatorgi. Afgreiðslutíminn er kl. 8-16.