Hér má lesa prófreglur HÍ. Mikilvægar upplýsingar, skjöl og eyðublöð sem varða prófhald í Háskóla Íslands eru aðgengileg í Uglunni, innri vef Háskólans.
Sumar námsleiðir í framhaldsnámi og flestar doktorsnámsleiðir krefjast þess að þú finnir leiðbeinanda áður en þú getur sótt um nám.
Nemendur og starfsfólk háskólans geta keypt aðgang að íþróttahúsinu. Það er gert á Þjónustuborðinu á Háskólatorgi.
Um leið og þú hefur greitt skrásetningargjaldið getur þú sótt notandanafn og lykilorð að Uglu í umsóknagáttinni.
Þú færð bókasafnsskírteini hjá Landsbókasafni – Háskólabókasafni án endurgjalds.
Þú getur sótt um stúdentakort í Uglu um leið og skrásetningargjald hefur verið greitt og aðgangur þinn að Uglu hefur verið virkjaður.
Hér er hægt að bóka tíma hjá ráðgjafa í bókunargátt.
Þú þarft að óska eftir prófsýningu innan 15 daga frá birtingu einkunnar, með því að hafa samband við kennara námskeiðsins.
Þú hefur aðgang að prenturum í tölvuverum Háskólans og á Landsbókasafni – Háskólabókasafni og getur keypt prentkvóta með greiðslukorti í Uglu. Prentkvóta má einnig kaupa á Þjónustuborðinu Háskólatorgi
Þú berð ábyrgð á þínu námi og skráir þig í öll námskeið í Uglu.