Þú hefur aðgang að prenturum í tölvuverum Háskólans og á Landsbókasafni – Háskólabókasafni og getur keypt prentkvóta með greiðslukorti í Uglu. Prentkvóta má einnig kaupa á Þjónustuborðinu Háskólatorgi.

Prentkvóti er bundinn við aðgang þinn að Uglu og þú þarft aðeins að skrá þig inn á tölvu í tölvuverum til að geta nýtt kvótann. Prentkvótireiknast í einingum og er hver eining ein blaðsíða prentuð í svart-hvítu. Ekki er hægt að kaupa færri en 50 einingar í einu.

Viljir þú prenta í lit eru dregnar 5 einingar af kvóta fyrir hverja prentaða síðu.

Lendir þú í vandræðum með prentkvóta skaltu snúa þér til Tölvuþjónustu Upplýsingatæknisviðs. Hjá Upplýsingatæknisviði er hægt að sjá prentferil og fá bakfærðar einingar, til dæmis ef blek í prentara klárast. Þá þarftu að framvísa ónýtu blaðsíðunum.

Í Uglu, undir Tölvuþjónusta → Prentkvóti, sérðu fjölda prentkvótaeininga sem þú átt. Athugaðu að notkun prentkvótans uppfærist á nóttinni.

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil