• Þú berð ábyrgð á þínu námi og skráir þig í öll námskeið í Uglu.
  • Í mars á hverju ári verður þú að velja námskeið fyrir næsta skólaár ef þú ætlar að halda áfram í núverandi námi.
  • Þú skráir þig með því að smella á borðann sem birtist efst í Uglu.
  • Mundu eftir að staðfesta valið með því að smella á „Vista“ neðst á síðunni.

Breytingar á skráningu

  • Í upphafi hvors misseris, til 27. ágúst á haustmisseri og til 21. janúar á vormisseri, getur þú breytt námskeiðaskráningunni í Uglu.
  • Eftir það er ekki hægt að skrá sig í ný námskeið.
  • Skráning í námskeið er jafnframt skráning í próf og veitir aðgang að öllum gögnum námskeiðs og því er mikilvægt að skráningin sé alltaf rétt.

Athugaðu að breytingar á námskeiðaskráningu koma ekki fram í stundatöflu fyrr en eftir þrjá klukkutíma.

Nánari upplýsingar um skráningartímabil má sjá í kennslualmanaki.

Þurfir þú af einhverjum ástæðum aðstoð við námskeiðaskráningu getur þú leitað til Nemendaskrár.

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil