Upplýsingar um lokaverkefni og fleira þeim tengt er hægt að nálgast í Uglu, innri vef Háskólans. Skiladagar lokaverkefna eru mismunandi eftir sviðum og deildum.
Skilgreiningar á námsformum eru mismunandi eftir því hvort um er að ræða námskeið eða námsleiðir.
Námsleið vísar til námsins í heild en innan hverrar námsleiðar taka nemendur einstök námskeið. Nemendur velja alltaf fyrst námsleið og skrá sig síðan í námskeið.
Rafrænt innsigluð skjöl eru til að skila rafrænt til hinna ýmsu stofnanna. Skjal sem er stimplað og undirritað er ætlað til að skila á pappír.
Umsóknarfrestur er mismunandi eftir því hvort þú sækir um grunn- eða framhaldsnám.
Um inntökuskilyrði í nám á meistara- og doktorsstigi gilda sérreglur deilda. Þessar reglur eru birtar í upplýsingum um einstakar námsleiðir í kennsluskrá og á vefsíðum fræðasviða, deilda og námsleiða.
Nemendur Háskólans geta bókað viðtal hjá Nemendaráðgjöf.
Þjónustuborðið á Háskólatorgi er góður fyrsti viðkomustaður. Hægt er að hafa samband í gegnum vefspjall, með tölvupósti eða í síma.
Í umsóknarferlinu við Háskóla Íslands óskum við eftir upplýsingum sem gera okkur kleift að kynnast þér og bakgrunni þínum betur.
Þú getur sótt um að fá nám frá annarri deild eða öðrum skóla metið til eininga inn í núverandi nám þitt hjá deildinni þinni.