Námsleið vísar til námsins í heild en innan hverrar námsleiðar taka nemendur einstök námskeið.
Flestar námsleiðir samanstanda af:
- skyldunámskeiðum,
- bundnu vali, þar sem valið er á milli tiltekinna námskeiða,
- frjálsu vali innan námsleiðarinnar.
Nemendur velja alltaf fyrst námsleið og skrá sig síðan í námskeið.
Með skriflegu samþykki deildar er hægt að velja námskeið úr öðrum námsleiðum sem frjálst val eða taka þau sem viðbótareiningar. Frjálst val er að jafnaði tekið á öðru eða þriðja námsári.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu viðkomandi deildar.