Í umsóknarferlinu við Háskóla Íslands óskum við eftir upplýsingum sem gera okkur kleift að kynnast þér og bakgrunni þínum betur. Sumar upplýsinganna kunna að vera viðkvæmar eða trúnaðarmál. Aðgangur að þeim er takmarkaður við þá starfsmenn deilda og stjórnsýslu sem þurfa á upplýsingunum að halda vegna afgreiðslu umsóknarinnar.
Farið er með allar persónuupplýsingar í umsóknum í samræmi við persónuverndarstefnu Háskóla Íslands. Upplýsingarnar eru aðeins aðgengilegar þeim starfsmönnum sem þurfa á þeim að halda við afgreiðslu umsóknarinnar og eru ekki veittar öðrum, svo sem fjölskyldumeðlimum, vinum eða kennurum.