Í kennsluskrá eru ítarlegar upplýsingar um allar námsleiðir og öll námskeið sem eru í boði við Háskólann.
Viljir þú taka hlé frá námi þarftu fyrst að fá leyfi frá þinni deild. Þegar þú hefur fengið leyfið hefur þú samband við Þjónustuborðið Háskólatorgi og greiðir 15.000 kr. leyfisgjald.
Í mars á hverju ári fer fram skráning í áframhaldandi nám í Uglu þar sem þú getur jafnframt óskað eftir því að skipta um aðalfag.
Teljir þú að brotið sé á rétti þínum varðandi kennslu, próf, námsmat, einkunnagjöf, mat á námsframvindu eða annað sem snýr að kennslu og prófum skaltu senda skriflegt erindi til deildarforseta.
Einkunnir eiga að hafa birst í síðasta lagi 2 vikum eftir hvert próf.
Fullt nám á einu háskólaári er 60 ECTS einingar, 30 ECTS einingar á hvoru misseri.
Ef þú vilt hætta námi þarftu að skila inn skriflegri yfirlýsingu um það.
Árleg skráning er skráning í námskeið næsta háskólaárs, bæði haust- og vormisseri.
Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands veitir nemendum ráðgjöf, stuðning vegna fötlunar og sálfræðiþjónustu meðan á námi stendur.
Alþjóðasvið Háskóla Íslands annast formleg samskipti Háskólans við erlendar menntastofnanir og veitir nemendum, kennurum og deildum Háskólans ýmsa þjónustu varðandi alþjóðlegt samstarf.