Ef þú vilt hætta námi þarftu að skila inn skriflegri yfirlýsingu um það. Það er hægt að gera með því að senda tölvupóst til Nemendaskrár (nemskra@hi.is) eða með því að koma á Þjónustuborðið Háskólatorgi og fylla út eyðublað sem staðfestir úrsögn úr Háskólanum. Námsferli þínum er þá lokað.
Ath. að úrsögn úr námskeiðum í Uglu er ekki úrsögn úr Háskólanum. Einstaklingur sem greitt hefur skrásetningargjald er skráður nemandi viðkomandi háskólaár óháð námskeiðaskráningu.