Meginmarkmið Bóksölunnar er að útvega nemendum við Háskóla Íslands kennslubækur og önnur námsgögn á sanngjörnu verði.
FS er fyrst og fremst þjónustufyrirtæki fyrir nemendur við Háskóla Íslands og er aðalmarkmið þess að bjóða nemendum við HÍ góða þjónustu á góðum kjörum og auka lífsgæði nemenda.
Nemendaráðgjöf Háskóla Íslands veitir nemendum margskonar stuðning og þjónustu á meðan á námi stendur.
Nemendaskrá Háskóla Íslands er þjónustueining fyrir nemendur, kennara og annað starfsfólk skólans og heldur skrá yfir alla nemendur skólans.
Stúdentaráð Háskóla Íslands er skipað 27 stúdentum við skólann. Verkefni ráðsins eru mörg og fjölbreytt, allt frá hagsmunabaráttu fyrir stúdenta yfir í skemmtilega viðburði eins og Októberfest.
Upplýsingatæknisvið Háskóla Íslands hefur meðal annars umsjón með Uglu, SmáUglunni, Eduroam (þráðlaust net Háskólans), tölvuverum og prenturum á háskólasvæðinu.
Segja má að Þjónustuborðið Háskólatorgi sé afgreiðsla fyrir þjónustueiningarnar sem eru í Háskólatorgi. Þjónustuborðið er oft fyrsti staðurinn sem nemendur leita til. Þar færð þú m.a. ýmis vottorð og yfirlit yfir námsferla og getur keypt prentkvóta.
Þú finnur upplýsingar um upphaf og lok kennslu í kennslualmanaki háskólans.
Að öllu jöfnu er opið í byggingum Háskólans frá kl. 7:30 - 17:00, nema um jól, páska og yfir sumarið.
Almenn próf eru samkvæmt reglum háskólans haldin 23. nóvember til 13. desember og 15. apríl til 12. maí.