Meginmarkmið Bóksölunnar er að útvega nemendum við Háskóla Íslands kennslubækur og önnur námsgögn á sanngjörnu verði.
Þá þjónustar Bóksalan flesta háskóla landsins, fjölda framhaldsskóla og ýmsar stofnanir.
Bóksalan útvegar öll helstu fræðirit og handbækur. Einnig er á vef Bóksölunnar vefverslun með heimsendingarþjónustu.
Bókakaffi stúdenta og Kaupfélag stúdenta eru staðsett í Bóksölu stúdenta.