Alþjóðasvið Háskóla Íslands annast formleg samskipti Háskólans við erlendar menntastofnanir og veitir nemendum, kennurum og deildum Háskólans ýmsa þjónustu varðandi alþjóðlegt samstarf.
Alþjóðasvið hefur einnig umsjón með skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi. Ef þú stefnir á námsdvöl erlendis getur þú leitað þér upplýsinga hjá Alþjóðasviði en umsóknir eru á vefnum.