Alþjóðasvið leiðir alþjóðlegt samstarf Háskóla Íslands og vinnur að því að efla tengsl HÍ við erlenda háskóla og aðra samstarfsaðila.
Sviðið hefur umsjón með náms- og starfsþjálfunartækifærum nemenda HÍ erlendis og móttöku skiptinema frá samstarfsháskólum. Það styður einnig við kennara- og starfsmannaskipti og veitir nemendum og starfsfólki ráðgjöf um alþjóðleg tækifæri og samstarf.
Alþjóðasvið sér um samstarfssamninga vegna nemenda- og starfsmannaskipta, styður fræðasvið og deildir við þróun alþjóðlegs samstarfs og tekur þátt í fjölbreyttum alþjóðlegum verkefnum. Sviðið leiðir jafnframt þátttöku Háskóla Íslands í evrópska háskólasamstarfinu Aurora.
Alþjóðasvið starfar náið með deildum og sviðum Háskólans. Hér er að finna upplýsingar um starfsfólk sem sér um alþjóðamál á sviðum og í deildum.